Innlent

Kannaðu hér hvar þú átt að kjósa

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hér má sjá fimm af þeim níu sem í framboði eru til embættis forseta Íslands.
Hér má sjá fimm af þeim níu sem í framboði eru til embættis forseta Íslands. Vísir/Eyþór
Kjörskrá fyrir forsetakosningarnar 2016 hefur verið gerð aðgengileg á vefnum. Nú geta því kjósendur flett sér upp til þess að komast að því hvar þeir geta greitt atkvæði þann 25. júní næstkomandi.

Nóg er að slá inn kennitölu á vefsíðunni sem finna má hér. Þá birtist nafn, lögheimili og sveitarfélag. Í mörgum tilvikum birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.   

„Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili þremur vikum fyrir kjördag, þann 4. júní 2016. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá,“ segir á vefsíðunni.

Stefanía Óskarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Níu manns eru í framboði til embættis forseta Íslands en það eru þau Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Jökulsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Halla Tómasdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Hildur Þórðardóttir og Sturla Jónsson. Af þessum níu hefur Guðni Th. afgerandi mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Stefanía Óskarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, sagði í Fréttablaðinu í dag að það væri gjarnan þannig að þegar einn frambjóðandi hefði svo mikið fylgi að þá skiluðu færri sér á kjörstað. 

Kosningarétt í kosningunum í ár eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og lögheimili eiga hér á landi. 

„Jafnframt eiga kosningarétt þeir íslenskir ríkisborgarar sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda eftir 1. desember 2007 og náð hafa 18 ára aldri á kjördag. Þá eiga kosningarétt þeir íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2007, enda hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár Íslands  fyrir 1. desember 2015. Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarétt við forsetakosningar og eru því ekki á kjörskrá. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar, sem eiga kosningarétt samkvæmt lögum nr. 85/1946, þ.e. þeir sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tíma á síðustu 10 árum fyrir þann tíma.“ 

Hægt verður að gera athugasemdir við kjörskránna fram að kjördegi.


Tengdar fréttir

Fylgi Guðna haggast ekki

Sex af hverjum tíu sem afstöðu taka segjast myndu kjósa Guðna Th. í embætti forseta. Dósent í stjórnmálafræði segir að línurnar séu farnar að skýrast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×