Sumarið verður árstíð Sturlu Stefán Þór Hjartarson skrifar 31. maí 2016 09:30 Strákarnir í 101 Boys eru með fagurfræðina á hreinu. Jóhann Kristófer er annar frá vinstri. Vísir/Kjartan Hreinsson „
Sturla Atlas er listamannanafn Sigurbjarts Sturlu Atlasonar en hann er söngvari/rappari úr 101 Reykjavík. Tónlistin fjallar um líf listamannsins og tekur á því hvernig er að vera ungur í hringiðu ástarinnar, skemmtanalífs og listarinnar. Sturla er hluti af 101 Boys sem samanstendur af ungum og óbilandi listamönnum sem holdgera hvað hverfið stendur fyrir,“ segir Jóhann Kristófer Stefánsson, einn af 101-strákunum sem voru að gefa út myndband við lagið Vino á hádegi í gær og munu gefa út mixteip á föstudaginn. Ásamt Jóhanni og Sigurbjarti eru þeir Logi Pedro Stefánsson og Arnar Ingi Ingason í þessum hópi en þeir gefa út tónlist undir nafninu Sturla Atlas og hafa einnig verið að senda frá sér aðra hluti, svo sem fatnað og fleira, t.d. hugmyndir að endurnýjanlegum vatnsflöskum svo eitthvað sé nefnt. Ljósmyndarinn Kjartan Hreinsson hefur einnig mjög sterka fagurfræðilega nærveru í hópnum í gegnum ljósmyndir, leikstjórn á myndböndum og hönnun. „Myndbandinu leikstýrðu Jóhann Kristófer Stefánsson og Kjartan Hreinsson. Ágúst Elí Ásgeirsson skaut það og klippti. Við vildum gera alvöru klassískt rappmyndband án þess þó að svíkja þá fagurfræði sem hefur einkennt verkefnið hingað til. Staðsetningar eru algjört aðalatriði en við skutum myndbandið á Eyrarbakka og í kringum Saltkaup í Hafnarfirði,“ svarar Jóhann aðspurður um myndbandið, sem er markað fagurfræði hópsins sem eins og áður segir hefur verið að senda frá sér hönnun meðfram tónlistarferlinum og því kannski hægt að tala um þá sem fjöllistahóp.Sigurbjartur Sturla Atlason, eða Sturla Atlas.Vísir/Kjartan Hreinsson„Þar sem plötuútgáfa á Íslandi er svo gott sem útdauð viljum við geta búið eitthvað til sem hægt er að eiga og tengja við tónlistina og fyrir hvað hún stendur. Með útgáfu These days fylgdi fyrsta línan en hún samanstóð af ljósmyndabæklingi, stutt- og síðermabolum ásamt pólóbolum og buffi og var unnin í samstarfi við Sigga Odds. Í tilefni af HönnunarMars héldum við svo sýninguna Sturla Aqua þar sem við tókum hugmyndina um að gefa út vöru sem samsvarar hugmynda- og fagurfræði Sturla Atlas enn lengra. Á sýningunni var að finna kynningarefni fyrir endurnýjanlega vatnsflösku ásamt Sturla Aqua fatnaði. Með útgáfu Season2 mun einnig koma út varningur í takmörkuðu upplagi en hvenær hann mun verða fáanlegur á eftir að koma í ljós.“ Hópurinn gefur út mixteipið Season2 á föstudaginn og mun það verða þriðja plata sveitarinnar. „Season2 er í rólegri kantinum og algjör sumarplata og sándið á henni er heilt yfir mjög einkennandi fyrir Sturla Atlas. Hún samanstendur af átta nýjum lögum sem eru flestum ókunnug, þó að glöggir aðdáendur kunni að hafa heyrt einhverjar útgáfur sumra laganna á tónleikum. Season2 er „soundtrack“ sumarsins 2016.“
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira