Drop-in brúðkaup og skírn án endurgjalds Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 23. maí 2016 07:00 "Þetta eru í raun svolítil mótmæli hjá mér. Fyrir hrun gátu brúðkaup jafnvel kostað meira en milljón krónur. Ég það á tilfinningunni að þetta sé að fara í það far aftur,“ segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Breiðholtskirkju. „
Ég vaknaði nú ekki með þessa hugmynd. Þetta er orðið mjög algengt í Svíþjóð og við buðum upp á þetta í söfnuðinum í Falun þar sem ég starfaði. Þar notfærir sér fjölmenni boðið.“ Þetta segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Breiðholtskirkju, um þá ákvörðun að bjóða upp á svokallaðan „drop-in“ skírnardag og brúðkaupsdag í kirkjunni. Þangað verður hægt að koma til skírnar, sjálfur eða með barn, laugardaginn 28. maí án endurgjalds og til hjónavígslu án endurgjalds laugardaginn 11. júní. Boðið verður upp á alla athöfnina með söng og undirleik. Í raun er um að ræða hálfgildings drop-in athafnir þar sem fólk þarf að hafa útvegað sér tilskilin vottorð áður. „Þess vegna byrjaði ég snemma að segja frá þessu. Þeir sem ætla að láta gefa sig saman þurfa að útvega sér hjúskaparstöðuvottorð sem getur tekið nokkrar vikur. Sé skírnarbarn yngra en 16 ára þarf skriflegt samþykki beggja ábyrgðarmanna barns. Auk þess þurfa foreldrar að koma með fæðingarvottorð. Það er hægt að útvega samdægurs,“ segir Þórhallur og bætir því við að tilvonandi brúðhjón þurfi að tilkynna um komu sína. Þau verði svo látin vita í vikunni fyrir brúðkaupið hvenær þeirra athöfn fari fram að deginum til þess að ekki verði biðröð. Gert er ráð fyrir að athafnirnar verði frá klukkan eitt eftir hádegi og til fjögur báða dagana. „Það er hægt að gefa saman sex pör á þessum tíma og nú þegar hafa fjögur pör boðað komu sína,“ greinir Þórhallur frá. Hann kveðst hins vegar reiðubúinn að gefa saman fólk fram á kvöld. „Við framlengjum ef með þarf. Tónlistarfólkið ætlar að skipta deginum á milli sín.“ Þórhallur vísar á bug gagnrýni um að kirkjan sé orðin örvæntingarfull vegna færri kirkjugesta og bjóði þess vegna ókeypis athafnir. „Þvert á móti. Það er verið að skíra og gifta í kirkjum úti um allt land í sumar. Þetta eru í raun svolítil mótmæli hjá mér. Fyrir hrun gátu brúðkaup jafnvel kostað meira en milljón krónur. Ég hef það á tilfinningunni að þetta sé að fara í það far aftur og með því að bjóða upp á ókeypis athafnir í kirkjunni er ég að benda á að tilstandið þurfi alls ekki að vera mikið.“ Greinin birtist í Fréttablaðinu 23.maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira