Halló, Grandaskóli kallar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 25. maí 2016 10:15 Tilhlökkunin til afmælishátíðarinnar leynir sér ekki hjá Erni skólastjóra og 6. bekkingum í Grandaskóla. Vísir/Anton Brink
Þrjátíu ára sögu Grandaskóla verður fagnað á morgun, fimmtudag. Fyrri partinn verður dagskrá fyrir krakkana og frá 16 til 18.30 er opið hús fyrir nemendur, starfsmenn og aðra velunnara. „Okkur þætti mjög gaman ef gamlir nemendur létu sjá sig. Grandaskóli kallar á þá,“ segir Örn Halldórsson skólastjóri glaðlega. Hann hóf kennslu við skólann 1989 og hefur starfað þar síðan að undanskildum fáum árum. „Hér hefur verið stabíll starfsmannahópur og það er gaman að segja frá því að nokkrir fyrrverandi nemendur eru orðnir hér starfsmenn, kennarar og stuðningsfulltrúar,“ segir hann. „Skólinn varð til 1986 þegar Grandahverfið var í uppbyggingu og átti í raun ekki að verða svona stór heldur vera fyrir sex til níu ára börn, sem síðan áttu að fara í Melaskóla. En foreldrarnir risu upp og fengu því framgengt að Grandaskólinn var frá 1. upp í 7. bekk. Síðan kom það fljótlega í ljós að þessi skóli var kominn til að vera og héðan fara krakkarnir í Hagskóla eins og úr Melaskóla. Mestur hefur nemendafjöldinn verið 470 en er núna um 300 og fer fjölgandi, næsta vetur verða hér um 330 því það er að koma stór árgangur inn,“ lýsir Örn. „Héðan fara svo krakkarnir í Hagaskóla eins og úr Melaskóla.“ Aftur að afmælisdagskránni sem Örn lýsir. „Sirkus Íslands verður fyrstur á svið klukkan 16, í boði foreldrafélags skólans. Nemendur láta ekki sitt eftir liggja, 5.?bekkur sýnir Stomp og 7. bekkur atriði úr Kardimommubænum. Svo verða tónlistaratriði og sýningar í öllum stofum auk þess sem börn í 6. bekk lesa upp úr bók sem þau eru að gefa út í samvinnu við Forlagið og Odda. Sum atriðin verða flutt oftar en einu sinni og áformað er að hluti dagskrárinnar verði á sviði utan dyra, til dæmis stór danssýning klukkan 18. Svo endar þetta á að hljómsveit foreldrafélagsins stígur á svið, þannig að það bæði byrjar og endar dagskrána. Það sér líka um veitingar – kökur og drykki.“ Örn segir undirbúning hafa staðið frá því fyrir áramót enda sé eftirvæntingin mikil. „Auðvitað vonum við að veðrið verði okkur hagstætt en erum viðbúin hinu.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. 6. 2016
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira