Sport

Phelps orðinn faðir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Phelps og sonur hans, Boomer.
Phelps og sonur hans, Boomer. mynd/instagram phelps
Ólympíugoðsögnin Michael Phelps brosir dátt þessa dagana enda orðinn faðir í fyrsta sinn.

Unnusta hans, Nicole Johnson, fæddi þeim dreng fyrir síðustu helgi. Drengurinn hefur þegar verið nefndur Boomer Robert Phelps.

Millinafn drengsins er í höfuðið á þjálfara Phelps, Bob Bowman. Hann sagði það hafa komið sér skemmtilega á óvart.

Phelps, sem hefur unnið 18 Ólympíugull, er að æfa á fullu fyrir leikana í Ríó í sumar sem verða hans svanasöngur í lauginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×