Innlent

Segir mál Davids Cameron líkjast meira máli Bjarna Benediktssonar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Prófessor í stjórnmálafræði telur ólíklegt að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segi af sér vegna upplýsinga sem koma fram í Panama-skjölunum um tengsl fjölskyldu hans við aflandsfélög í skattaskjólum. Mál hans líkist máli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra meira en máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra.

Cameron hefur verið undir miklum þrýstingi síðan Panama-skjölin voru birt síðastliðinn sunnudag. Þúsundir mótmæltu á götum úti í London í gær og kröfðust þess að hann segði af sér. Auk þess sem fjölmiðlar um allan heim hafa fjallað um tengsl fjölskyldu hans við aflandsfélög.

Sjá einnig: Bjarni átti í félagi sem skráð var á Seychelles-eyjum

Eiríkur Bergmann. Vísir/Hörður Sveinsson
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir ólíklegt að breski ráðherrann muni segja af sér.

„Ekkert af því sem enn hefur gerst bendir til þess að hann muni segja af sér. Hann er náttúrlega líka í þeirri stöðu að hann hefur lýst því yfir að hann æski ekki endurkjörs. Þannig að hann er ekki í neinni þannig stöðu. Það er heldur ekki þannig að hans eigin flokksfélagar séu að kalla eftir því né stjórnarandstaðan ekkert sérstaklega ákaft heldur. Þetta er miklu frekar það að hann stendur veikari eftir sem forsætisráðherra Bretlands heldur hann hefur gert hingað til. En á þessari stundu er ekkert sem bendir til þess að hann ætli að víkja eða að hann verði neyddur til þess,“ segir Eiríkur.

Hann segir mál Camerons töluvert ólíkt máli Sigmundar Davíðs og eiginkonu hans Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur. „Þau eru auðvitað töluvert mikið frábrugðin. Breski forsætisráðherrann er ekki sakaður um að það hafi verið óeðlileg hagsmunatengsl eða neitt því um líkt. Umfangið er líka töluvert mikið minna. Sumpart er þetta kannski miklu svipaðra stöðu fjármálaráðherrans hér hjá okkur. Það er nær hans stöðu heldur en forsætisráðherrans okkar. Þannig að það er auðvitað eðlis ólíkt.“

Cameron hefur nú birt skattframtöl sín til að sýna fram á að hann hafi ekkert að fela og að hann hafi ekki skotið undan skatti. Spurður hvort Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra eigi að grípa til svipaðra aðgerða til að endurheimta traust almennings segist Eiríkur ekki ætla að veita honum nein sérstök ráð.

„Hann verður að finna út úr því sjálfur. Og auðvitað er það spursmál hversu langt eigi að ganga í upplýsingagjöf um einkamálefni fólks. Það er greinilega komin upp krafa um að stjórnmálamenn opinberi upplýsingar í ríkari mæli heldur en ætlast er til af almenningi og það krefst alveg sérstakrar umræðu hversu langt við eigum að ganga í þeim efnum.“


Tengdar fréttir

Cameron stendur höllum fæti vegna mótmælanna á Íslandi

Þúsundir mótmælenda komu saman í Lundúnum í dag til að krefjast afsagnar David Cameron forsætisráðherra landsins vegna tengsla hans við skattaskjól. Stjórnmálafræði-prófessor segir Cameron standa höllum fæti í Bretlandi vegna atburða síðustu daga og mótmælanna á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×