Innlent

Skil vel að fólk hafi miklar áhyggjur

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Elín Hirst, fyrir þingflokksfundinn í dag.
Elín Hirst, fyrir þingflokksfundinn í dag. Vísir/Pjetur
Elín Hirst sagði fyrir þingflokksfund Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í dag að hlutir hefðu skýrst að verulegu leyti eftir blaðamannafund forsetans á Bessastöðum í morgun.

„Ég tel að hann hafi verið að gera rétt, að hann vildi ræða við aðra fyrst,“ sagði Elín sem kvaðst ekki hafa hugmynd um hvort ríkisstjórnin lifði daginn af.

„Aðalatriðið er að ég skil vel að fólk hafi miklar áhyggjur og ég hef sjálf miklar áhyggjur. Það skiptir miklu máli að leiða þessi mál farsællega til lykta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×