Innlent

Tekinn próflaus á stolinni bifreið undir áhrifum fíkniefna

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöldi ökumann og farþega á Reykjanesbraut við Arnarnesveg, grunaðir um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi, en hún hafði verið tilkynnt stolin. Ökumaðurinn, sem hefur að sögn lögreglu brotið ítrekað af sér, er próflaus en hann er jafnframt grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Fólkið var látið laust að lokinni skýrslutöku.

Þá var önnur bifreið stöðvuð á Reykjanesbraut en sá ökumaður var einnig próflaus og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×