Innlent

Tvær konur í fyrsta sinn skráðar sem reykkafarar á slökkvibíl

Atli Ísleifsson skrifar
Birna Björnsdóttir og Sigríður Dynja Guðlaugsdóttir.
Birna Björnsdóttir og Sigríður Dynja Guðlaugsdóttir. Mynd/SHS
Tvær konur voru í fyrsta sinn skráðar sem reykkafarar á slökkvibíl um helgina.

Í tilkynningu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að lengi vel hafi slökkviliðið bara verið með eina konu í starfi slökkviliðsmanns, Birnu Björnsdóttur, en nú sé Sigríður Dynja Guðlaugsdóttir, í námi til atvinnuslökkviliðsmanns og hefur öðlast réttindi til reykköfunar.

Þær voru í fyrsta sinn skráðar saman á bíl sem reykkafarar um helgina og eru myndirnar teknar af því tilefni. 

Mynd/SHS
Mynd/SHS



Fleiri fréttir

Sjá meira


×