Innlent

Dæmdur til að greiða 63 milljónir í sekt

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Félögin tvö sem um ræðir eru bæði gjaldþrota.
Félögin tvö sem um ræðir eru bæði gjaldþrota. vísir/ernir
Rúmlega fertugur framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í tveimur bílaleigum, Arctic Roadtrip og Cheap Jeep, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum. Honum hefur jafnframt verið gert að greiða 63 milljónir króna í sekt innan fjögurra vikna, ellegar sæta fangelsi í tæpa níu mánuði.

Manninum var gefið að sök að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum og fyrir að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti á ákveðnum uppgjörstímabilum árin 2011 til 2014. Í dómnum kemur fram að vangoldin staðgreiðsla vegna fyrirtækjanna tveggja nemi tæplega 14,6 milljónum króna og vangoldinn virðisaukaskattur 17,9 milljónum króna.

Maðurinn játaði brot sín en krafðist vægustu refsingar. Hann hefur samkvæmt sakavottorði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað og var litið til hreinskilnislegrar játningar hans við ákvörðun refsingarinnar.

Cheap Jeep komst í fréttirnar sumarið 2013 þegar RÚV greindi frá því að Samgöngustofa hefði gert athugasemdir við ótryggða bíla hjá fyrirtækinu. Þá hafði fólk sem leigði bílinn lent í árekstri og valdið tjóni.

Félögin tvö sem um ræðir eru bæði gjaldþrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×