Segir hótelið hafa getað komið í veg fyrir að eltihrellir náði nektarmyndum af sér Atli Ísleifsson skrifar 2. mars 2016 10:21 Erin Andrews í dómshúsinu í Nashville í gær. Vísir/AFP
Bandaríska íþróttafréttakonan Erin Andrews segir að hún hafi daglega þurft að endurlifa atvikið þar sem eltihrellir hennar náði myndbandsupptöku af henni nakinni á hótelherbergi fyrir sjö árum síðan.Í frétt New York Times kemur fram að réttarhöld í máli Andrews gegn Nashville Marriott hótelinu hafi haldið áfram í Nashville í gær, en hún hefur farið fram á greiðslu 75 milljóna Bandaríkjadala í skaðabætur. Andrews starfar nú sem íþróttafréttakona hjá Fox sjónvarpsstöðinni en starfaði á þeim tíma hjá ESPN. Hún sagði fyrir dómi að hún fái stöðugt skilaboð sem snúa að myndskeiðinu, allt frá því að því var dreift á netinu 2008. Maðurinn sem tók upp myndskeiðin, Michael David Barrett, hefur nú þegar afplánað tveggja ára dóm vegna málsins, en hann ferðaðist milli ríkja í þeim tilgangi að mynda Andrews við fjölda tilvika. „Ég skammast mín svo mikið. Þetta gerist á hverjum degi. Annað hvort fæ ég send tíst, eða þá minnist einhver á þetta í blöðunum, eða einhver sendir mér skjáskot úr myndbandinu á Twitter-síðu minni, eða þá öskrar einhver á mig úr áhorfendapöllunum,“ sagði Andrews í vitnastúkunni. Þá sagðist hún vera hrædd við að hitta fólk og fara á stefnumót. Ávallt spyrji hún sig: „Hefur hann séð myndbandið?“Hún segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir áreitið sem hafi orðið fyrir og því ákveðið að lögsækja Barrett og hótelið um samtals 75 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpa tíu milljarða króna. Andrews segir að starfsmenn Marriott hefðu átt að upplýsa hana um að maður hafi spurst fyrir um hvort hún dvaldi á hótelinu. „Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Starfmenn Nashville Marriott hefðu getað hringt í mig og sagt: Við ætlum að setja þennan mann sem var að spyrja um þig í herbergið við hliðina á þér. Er það í lagi?“ Þá hefði ég getað hringt í lögregluna og við hefðum náð honum. Ég er svo reið. Ég er svo brjáluð.“ Barrett hefur viðurkennt að hafa notast við smærri gerð af öxi til að opna gægjugöt á hótelherbergjum til að mynda Andrews og raunar fleiri konur. Andrews starfar nú á Fox sjónvarpsstöðinni sem íþróttafréttamaður og er kynnir þáttanna Dancing with the Stars á ABC. Hún ræddi málið í þætti Oprah Winfrey árið 2009 og má sjá brot úr viðtalinu að neðan.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira