Höfuðpaur barnaklámssíðu fékk þungan dóm Birgir Örn Steinarsson skrifar 7. mars 2016 11:56 Nota þurfti sérstaka vafra til þess að finna síðurnar. Myndin er sviðsett. Visir/Getty
Á föstudag var 48 ára karlmaður í Danmörku dæmdur í sex ára fangelsi í einu stærsta barnaklámsmáli sem upp hefur komið í landinu. Maðurinn, sem var frá bænum Randers á Jótlandi, beitti tvö börn kynferðislegu ofbeldi á tveggja ára tímabili. Málið hefur þó vakið sérstaka athygli í Danmörku þar sem maðurinn hafði játað að hafa haldið uppi heimasíðunni Hoarders Hell sem var sérstaklega hönnuð til þess að laða að og virkja barnaníðinga til þess að deila efni. Síðuna er erfitt að finna á netinu á hefðbundnum vöfrum og til þess að fá aðgang að henni var skylda að hlaða inn nýju efni. Um 18 þúsund manns höfðu sótt um að fá aðgang að síðunni en aðeins þeir sem gátu sýnt fram á að efnið sem þeir sendu inn væri annað hvort þeirra eigin framleiðsla eða áður óséð fengu aðgang. Tveir aðrir menn voru handteknir vegna vefsins árið 2014, einn í Ástralíu og hinn í Hollandi. Á tölvum Danans fundust 3696 ljósmyndir og 116 myndskeið af barnaklámi. Maðurinn var einnig einn af stjórnendum síðunnar The Love Zone sem hefur orðið þekkt fyrir að vera nýtt af barnaníðingum til samskipta. Einnig var danski maðurinn sakaður um áform um að kaupa barn í Rúmeníu árið 2010. Sú kæra var byggð upp af samskiptum er hann hafði átt á netinu en Daninn neitaði þeirri sök með þeim rökum að þar hefði aðeins verið um spaug að ræða. Lögreglan hafði þó undir höndum samskipti þar sem maðurinn útlistaði áformum sínum um að ferðast með barnið til móts við aðra barnaníðinga í Svíþjóð gagngert til þess að framleiða barnaklám.Nánar er fjallað um málið í dönskum miðlum.Uppfært 18.00: Í fyrstu útgáfu þessarar fréttar var ranglega fullyrt að maðurinn hefði hlotið 35 ára fangelsisdóm. Hið rétta er að dómurinn hljóðaði upp á sex ár en maður sem handtekinn var í Ástralíu vegna vefsíðunnar Hoarders Hell hlaut 35 ára dóm.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Sjá meira