Kókaín í golfkylfum: Íslenska konan látin laus gegn tryggingu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. febrúar 2016 18:15 Leið kvennanna frá Reykjavík og til Cancun með millilendingu í Toronto. Þær fóru þó aðeins með golfsettin utan og flúðu heim án þeirra. Vísir
Rúmlega fertug íslensk kona hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi í Toronto í Kanada gegn tryggingu. Hún má þó ekki yfirgefa Kanada á meðan mál hennar er til meðferðar. Þetta staðfestir fjölmiðlafulltrúi hjá konunglegu kanadísku riddaralögreglunni í samtali við Vísi. Tryggingaféð nemur 25 þúsund Kanadadölum sem samsvarar um 2,3 milljónum íslenskum krónum. Konan hefur verið ákærð fyrir innflutning á ólöglegum fíkniefnum til Kanada en 974 grömm af kókaíni fundust í golfsetti sem hún hafði sótt til Toronto og hugðist flytja til Íslands. Konan kom fyrir dómara á föstudaginn en samkvæmt fjölmiðlafulltrúanum hefur hún enn ekki tekið afstöðu til ákærunnar.Golfsettin fjögur í Leifsstöð áður en konurnar fjórar héldu í ævintýraferð til Cancun.Óvænt frí og enn óvæntara golfsettVísir greindi frá málinu þann 12. febrúar en það er hið undarlegasta. Konan tilkynnti þremur vinkonum sínum í nóvember í fyrra að hún hefði unnið skemmtiferð til Cancun í Mexíkó í ónefndum leik og bauð þeim með. Í flugstöð Leifs Eiríkssonar fengu konurnar hvert sitt golfsettið til að taka með og sagði hún kunningjakonum sínum að planið væri að spila golf í sólinni í Mexíkó. Engin kvennanna mun vera kylfingur. Konurnar fjórar millilentu í Toronto áður en til Mexíkó var komið. Þar fór konurnar þrjár að gruna að ekki væri allt með felldu eftir að golfsettin voru skilin eftir í móttökunni og þangað mætti íslenskur maður sem sýndi settunum áhuga. Sá á meðal annars sex ára dóm að baki fyrir fíkniefnainnflutning. Óttaslegnar konurnar héldu heim fyrr en ætlað var og fór konan með vinkonum sínum. Í Toronto stungu þær vinkonuna af sem kom til Íslands með flugi á eftir hinum þremur.Frí skemmtireisa til Cancun breyttist í martraðarkennda skelfingu, þegar konurnar voru orðnar sannfærðar um að nota ætti þær sem burðardýr.VísirKemur fyrir dómara 18. mars Nokkrum vikum síðar fékk konan ábendingu um að póstsending til hennar hefði verið stöðvuð í Toronto. Um var að ræða golfsett. Hún þyrfti að koma utan til að ná í golfsettið. Eftir að hafa veitt settinu viðtöku var hún handtekin á leið sinni í flug áleiðis aftur til Íslands. Um svipað leyti fann lögregla aðra póstsendingu á nafni konunnar og var aftur um að ræða golfsett. Tæplega kíló af kókaíni fundust og hefur konan setið í gæsluvarðhaldi í Toronto frá 18. desember og þangað til á föstudaginn. Hún mun næst koma fyrir dómara þann 18. mars.
Tengdar fréttir Lögregluyfirvöld leiddu íslensku konuna í gildru Íslensk kona hefur setið í gæsluvarðhaldi í Kanada síðan fyrir jól grunuð um aðild að stórfelldum fíkniefnasmygli. 12. febrúar 2016 16:31 Handtekin með kíló af kókaíni á leiðinni til Íslands Íslenska konan er ákærð í Kanada fyrir innflutning á fíkniefnum. Hún hefur verið í gæsluvarðhaldi í 55 daga. 12. febrúar 2016 21:27 Flúðu skelfingu lostnar frá Cancun Íslensk kona í gæsluvarðhaldi í Kanada. Talin hafa reynt að narra þrjár vinkonur sínar til að gerast burðardýr. Ótrúleg frásögn. 12. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira
Lögregluyfirvöld leiddu íslensku konuna í gildru Íslensk kona hefur setið í gæsluvarðhaldi í Kanada síðan fyrir jól grunuð um aðild að stórfelldum fíkniefnasmygli. 12. febrúar 2016 16:31
Handtekin með kíló af kókaíni á leiðinni til Íslands Íslenska konan er ákærð í Kanada fyrir innflutning á fíkniefnum. Hún hefur verið í gæsluvarðhaldi í 55 daga. 12. febrúar 2016 21:27
Flúðu skelfingu lostnar frá Cancun Íslensk kona í gæsluvarðhaldi í Kanada. Talin hafa reynt að narra þrjár vinkonur sínar til að gerast burðardýr. Ótrúleg frásögn. 12. febrúar 2016 07:00