Marsspá Siggu Kling – Vog: Fáðu fólk í lið með þér með persónutöfrunum 26. febrúar 2016 09:00
Elsku, elsku vogin mín. Þú ert eitthvað svo glamorus og það fylgja þér svo mikil smekklegheit og hugmyndir. Þú hefur þann kraft til þess að geta haft áhrif sem litríkasta merkið í sólkerfinu. Breiddu úr vængjunum þínum og byrjaðu að fljúga, því að þú ert stílistinn í eigin lífi. Þú ert svo skemmtilega skipulögð sem margir sjá kannski ekki sem einkennið þitt því að þú getur líka átt erfitt með að taka ákvarðanir og færð smá valkvíða. En það er bara ekki alveg rétt, að minnsta kosti ekki núna því þú ert alveg „on-fire“! Þú átt eftir að vera svo mikið í símanum og ganga frá svo mörgu og þú þarft að setja ákveðin mörk við sumt fólk í kringum þig, bara í rólegheitum, svo þú missir ekki orkuna þína. Það eru töluverðar áhyggjur í kringum þig út af öðru fólki en mundu það, elsku vogin mín, að þú bjargar engum með því að hafa áhyggjur af þeim. Úr áhyggjum myndast aldrei lausnir, þú þarft að sýna öðrum að þú sért það sterk að ekkert bugi þig þó að þér fallist kannski örlítið hendur og þér líði illa. Steinhættu að stjórna fólki í kringum þig, fáðu það frekar í lið með þér með persónutöfrunum. Þú ert fullfær um það og ef þú gerir það áttu eftir að verða sigursæl. Það er fólk í kringum þig sem á eftir að reyna að herma eftir þér og ekkert vera að láta það fara í taugarnar á þér heldur líttu á það sem hrós og merki um að þú sért að gera eitthvað rétt. Ef þú ert karlmaður í voginni hjartað mitt þá skalt þú ekki vera að skipta um skoðanir í sambandi við ástina. Þú þarft örugga og pottþétta ást svo ekki skipta út ástinni fyrir einhverja skyndihugsun sem verður svo ekki að neinu. Þetta getur líka átt við þig þó þú sért kona en ég skynja þetta skýrar hjá ykkur körlunum. Þegar þú átt síst von á því að eitthvað breytist verður þú svo rosalega heppin og fyllist þeirri ánægjutilfinningu sem mun gefa þér bensín til að halda áfram svona hnarreist eins og þú ert elskan mín. Mottóið þitt er: Þú þarft svolítið að feika það þangað til þú munt meika það. Og mundu hjartans vogin mín að betri er ein ást í hendi en fjörutíu í skógi.Frægir í voginni: Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Heitur Teitur selur Lífið Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf Fleiri fréttir Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Sjá meira