Blaðamaður mátti taka myndband af reiðum stuðningsmanni sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. febrúar 2016 13:45 Stuðningsmaðurinn gagnrýndi dómgæsluna í leiknum harðlega. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/valli
Persónuvernd hefur vísað frá máli áhorfanda á knattspyrnuleik sem kvartaði undan því að hafa verið tekinn upp á myndband í leik Aftureldingar og Selfoss í Pepsi-deild kvenna árið 2014.Gagnrýndi dómgæsluna Áhorfandinn hafði nokkuð ákveðnar skoðanir á dómgæslunni og lét vel í sér heyra. Myndband af honum rataði á veraldarvefinn, meðal annars á Youtube og Fótbolti.net en maðurinn taldi upptökuna ekki samrýmast lögum, ásamt því að koma henni til fjölmiðla hefði verið lögbrot. Fréttamaður á leiknum birti umrætt myndskeið á netinu. Lögmaður hans sagði í svari sínu til Persónuverndar að umbjóðandi sinn hefði talið hegðun áhorfandans fréttnæma, og að með henni hefði hann vakið athygli viðstaddra. Fótboltaleikir séu nær allir teknir upp á myndband og ætti það að vera þeim sem heimsækja völlinn að vera það ljóst, enda séu myndbandsupptökuvélar staðsettar efst í áhorfendastúku. Þá sé það óhjákvæmilegt að áhorfendur séu að einhverju leyti í mynd. Aldrei í sjónlínu upptökuvélar Þá sagði hann jafnframt að myndbandið hafi vakið mikla athygli og því ákveðið að skrifa frétt um hegðun þessa stuðningsmanns. Í frétt Fótbolta.net kom fram að svo virtist sem auglýsingaherferð KSÍ, Ekki tapa þér, hafi ekki náð til allra. Lögmaðurinn sagði vinnslu fréttarinnar sanngjarna og málefnalega gagnvart stuðningsmanninum að því leyti að birt myndskeið sýni ekki grófustu ummæli hans eða verstu hegðun á leiknum. Áhorfandinn sagði að engin skilti eða merkingar hafi verið á því svæði þar sem leikurinn fór fram, og þrátt fyrir að slíkir leikir séu teknir upp eigi áhorfendur ekki að þurfa að gera ráð fyrir að upptökuvélum sé beint sérstaklega að þeim. Hann hafi sjálfur aldrei verið í sjónlínu upptökuvélar. Þá hefði verið hægt að styðjast við myndefni af leiknum án hljóðs og hefði rödd hans þá ekki fylgt myndefninu. Í úrskurði Persónuverndar segir að af gögnum málsins megi ráða að maðurinn hafi vakið athygli blaðamanns og annarra áhorfenda með hegðun sinni á opinberum vettvangi. Þá hafi honum mátt vera ljóst að fjölmiðlar og fréttamenn væru viðstaddir fótboltaleikinn sem myndu flytja fréttir af viðburðinum. Sá sem tekið hafi myndskeiðið hafi verið á leiknum sem fréttamaður og tekið upp hegðun mannsins þar sem hann hafi talið að um fréttnæmt efni af opinberum viðburði væri að ræða, sem ætti erindi við almenning. Auglýsingaherferð KSÍ - Ekki tapa þér.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira