Hundar elska okkur mun meira en kettir Bjarki Ármannsson skrifar 1. febrúar 2016 20:20 Kettir kunna ekki nærri því jafn vel að meta mannfólk og hundar, ef marka má nýja rannsókn. Vísir/Getty
Kettir kunna ekki nærri því jafn vel að meta mannfólk og hundar. Að minnsta kosti ekki ef marka má rannsókn sem framkvæmd var fyrir nýja heimildarmynd breska ríkisútvarpsins og fjallað er um á vef breska blaðsins Independent. Taugalæknir kannaði þar viðbrögð tíu katta og tíu hunda við því að leika við mennska eigendur sína og niðurstöðurnar eru ekkert sérstaklega skemmtileg lesning fyrir kattaeigendur. Vísindamenn hafa lengi talið sig vita að hundar framleiða oxytósín, sem einnig er þekkt sem „ástarhormónið,“ í heilanum þegar þeir hitta eigendur sína. Ekki fyrr en nú hefur verið reynt að athuga hvort það sama eigi við hjá köttum. „Það bendir margt til þess að hundar elski í raun mennina sína,“ segir taugalæknirinn Paul Zak, sem framkvæmdi tilraunina. „Nokkrar minniháttar tilraunir hafa sýnt að bæði hundar og eigendur þeirra framleiða oxytósín þegar þeir talast við og leika. Mannfólk framleiðir þetta hormón líka þegar okkur þykir vænt um einhvern, til dæmis þegar við hittum maka okkar eða börn.“Zak bar saman sýni úr köttunum og hundunum bæði fyrir og beint eftir samverustund með eigendunum. Sýnin leiddu í ljós að magn hormónsins jókst um 57,2 prósent að meðaltali í hundunum en aðeins um tólf prósent í köttunum. Miðað við þær niðurstöður, mætti segja að hundarnir elski eigendur sína fimm sinnum meira en kettirnir. „Hundarnir brugðust mjög sterkt við,“ segir Zak. „Þetta sýnir að þeim þykir mjög vænt um eigendur sína. Það kom líka skemmtilega á óvart að sjá kettina framleiða oxytósín yfir höfuð. Þeir virðast tengjast eigendum sínum tilfinningaböndum, í það minnsta í einhverjum tilfellum.“
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Sjá meira