Segja Tyrki vera komna að þolmörkum Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. febrúar 2016 23:29 Drengur í flóttamannabúðum sem komið hefur verið upp við landamæri Tyrklands og Sýrlands. vísir/ap
Tyrknesk stjórnvöld segjast vera komin að þolmörkum en að Tyrkir muni þrátt fyrir það halda áfram að taka þá móti flóttamönnum sem flýja átökin í Sýrlandi. Tyrkir hafa verið undir miklum þrýstingi frá alþjóðasamfélaginu sem vill að landið taki við þeim tugþúsundum sem eru nú strandaglópar á landamærum ríkisins við Sýrland. Á sama tíma skipuðu Sameinuðu arabísku furstadæmin sér í sveit með Sádí Arabíu þegar þau sögðust vera opin fyrir hugmyndinni um að hefja landhernað í Sýrlandi gegn vígamönnum Íslamska ríkisins. Sýrlensk stjórnvöld hafa þó tekið fálega í hugmyndina og segja hana samsvara stríðsyfirlýsingu við land og þjóð. Tyrknesk stjórnvöld telja að 35 þúsund flóttamenn hafi verið við landamærin í dag sem voru lokuð þriðja daginn í röð. Héraðsstjóri landamærahéraðsins Kilis sagði í gær að Tyrkir myndu halda áfram að liðsinna flóttamönnum en þeir myndu einungis opna landamæri sín að nýju ef eitthvað stórvægilegt kæmi upp á. Sýrlendingarnir eru á flótta undir hörðum bardögum í nágrenni stærstu borgar Sýrlands, Aleppo, en sýrlenski stjórnarherinn hóf fyrir skömmu mikla sókn gegn uppreisnarmönnum með stuðningi rússneskra flugsveita. Varaforsætisráðherra Tyrklands sagði í samtali við CNN að Tyrkir hýstu nú um 3 milljónir flóttamanna, þar af 2.5 milljónir Sýrlendinga. „Tyrkland er komið að mörkum þess sem það getur tekið við flóttamönnum,“ sagði Numan Kurtulmus. „En þegar öllu er á botninn hvolft getur þetta fólk ekki leitað annað. Þau munu annars deyja í sprengjuregni og Tyrkland mun horfa upp á slátrunina eins og restin af heimsbyggðinni,“ bætti hann við. Kurtulmus taldi að um 15 þúsund flóttamenn hefði verið hleypt inn í landið á síðustu dögunum og gerði ráð fyrir að verið væri að sinna um 30 þúsund öðrum flóttamönnum hinum megin við landamærin. Á fimmtudaginn samþykktu 60 ríki heimsins að veita allt að 1.300 milljörðum í aðstoð vegna ástandsins í Sýrlandi og munu íslensk stjórnvöld leggja til um hálfan milljarð íslenskra króna.
Tengdar fréttir Stefnir í umsátur um Aleppo Sýrlenski stjórnarherinn sækir hratt að Aleppo og líklegt þykir að hundruðir þúsundir Sýrlendinga muni lokast inn í borginni. 6. febrúar 2016 17:45 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira
Stefnir í umsátur um Aleppo Sýrlenski stjórnarherinn sækir hratt að Aleppo og líklegt þykir að hundruðir þúsundir Sýrlendinga muni lokast inn í borginni. 6. febrúar 2016 17:45