Náðaði konu sem myrti ofbeldisfullan eiginmann Samúel Karl Ólason skrifar 31. janúar 2016 23:34 Jacqueline Sauvage var dæmd í tíu ára fangelsi fyrir að myrða eiginmann sinn. Vísir/EPA
Francois Hollande, forseti Frakklands, náðaði í dag konu sem hafði verið dæmd í tíu ára fangelsi fyrir að myrða eiginmann sinn. Maðurinn hafði misþyrmt henni í áratugi. Það að forsetinn veiti fólki náðun er mjög sjaldgæft í Frakklandi en rúmlega 400 þúsund manns höfðu sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem farið var fram á að henni yrði sleppt. Í tilkynningu frá forsetanum segir að Hollande hafi viljað koma Jacqueline Sauvage aftur til fjölskyldu sinnar eins fljótt og auðið væri. Forsetinn fundaði með tveimur dætrum Sauvage og lögfræðingum hennar á föstudaginn. Hún var gift manni sínum í 47 ár en segir hann hafa barið og nauðgað sér og dætrum þeirra auk þess sem hann misþyrmdi syni þeirra. Þann tíunda september 2012, degi eftir að sonur þeirra hengdi sig skaut Sauvage eiginmann sinn þrisvar sinnum í bakið með riffli. Ein dóttir þeirra lýsti dauða hans sem „létti“. Hann hafði nauðgað henni þegar hún var 16 ára gömul. Hún var dæmd í tíu ára fangelsi í október 2014 og var sá dómur staðfestur í desember í fyrra. Eins og áður hefur komið fram er sjaldgæft að forseti Frakklands veiti dæmdu fólki náðun. Francois Hollande hefur einungis einu sinni gert það áður.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Sjá meira