Hringavitleysa Skafti Þ. Halldórsson skrifar 20. janúar 2016 07:00 Hvílík blessun er það að vera grunnskólakennari nú um stundir. Ánægjan við að innleiða nýja aðalnámskrá er ómæld enda miklar sviptingar og breytingar á allri nálgun náms og kennslu. Margt í þeirri námskrá er svo skemmtilega loðið og flókið að umræður um það allt saman veita daglega ánægju, spjallið endalaust og líf kennara líkist orðið lífi hetjanna í Survivor. Hver kemst af? Hver botnar nokkuð í þessu? Kennarar hafa nóg að gera. Ekki eru þeir leiðinlegri skemmtikraftarnir í nýmyndaðri Menntamálastofnun og raunar nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins sem hafa komið fram með lausnir á námsmati grunnskólans. Nú fáum við kennarar tækifæri til að umreikna okkar gömlu einkunnaskala eða stig, hvort sem þeir voru áður 1 til 10 eða 1 til 4 í bókstafina A, B, C sem er vitaskuld mikil framför og þar að auki B plús og C plús í 10. bekk. Talnagildin gömlu, sem byggðu sums staðar eingöngu á þekkingu nemenda á námsgreinum, víkja. Á bak við hinn nýja kvarða hefur hver skóli fyrir sig komið upp ítarlegum hæfniviðmiðum, byggðum á skóla- og aðalnámskrám svo að halda skyldi að allt væri nú á hreinu varðandi námsmat skólanna. Upplýsingarnar ítarlegri og meiri. Tekið er skýrt fram í nýlegri glærusýningu á heimasíðu Menntamálastofnunar að ekki skuli reiknað meðaltal einkunna enda erfitt að sjá hvernig meðaltal A, A, B, B, B plús og C ætti að vera.Hvers konar hringavitleysa er þetta? En gamanmálunum lýkur ekki með þessu. Nú liggja fyrir tillögur um námsaðstoð við forystumenn framhaldsskólanna. Ef marka má fréttir dagblaða geta sumir skólameistarar þeirra skóla ómögulega skilið þessi námsviðmið þegar þeir þurfa nú að taka á móti nýjum nemendum sem eru með nýstárlegar einkunnir og þurfa því hjálp til að túlka A, B og C að ég tali nú ekki um B plús og C plús. Og til hvaða ráðs grípur Menntamálastofnun til að aðstoða blessaða skólameistarana? Nú skal umreikna ABC og plúsana tvo yfir í tölur á nýjan leik 1 til 4. Þannig gildir A nú sem 4, B plús sem 3,75, B sem 3, C plús 2,75 og C sem 2. Og á glærusýningunni góðu er svo sýnt hvernig megi reikna heildarsummu þessara talnagilda sem auðveldar skólameisturunum að reikna meðaltal og verður að segja að það sé í býsna mikilli mótsögn við þau fyrirmæli til grunnskólanna að alls ekki eigi að reikna út meðaltöl. Nú er mér sem fákænum deildarstjóra í grunnskóla spurn: Hvers konar hringavitleysa er þetta eiginlega? Hefur Ragnar Reykás verið ráðinn í störf við Menntamálastofnun? Hvaða vit er í því að reikna niðurstöður mats úr tölum yfir í ABC og plús en reikna það síðan allt saman yfir í tölur aftur? Og hvers konar vanmat er þetta eiginlega á andlegu atgervi skólameistara framhaldsskólanna? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Hvílík blessun er það að vera grunnskólakennari nú um stundir. Ánægjan við að innleiða nýja aðalnámskrá er ómæld enda miklar sviptingar og breytingar á allri nálgun náms og kennslu. Margt í þeirri námskrá er svo skemmtilega loðið og flókið að umræður um það allt saman veita daglega ánægju, spjallið endalaust og líf kennara líkist orðið lífi hetjanna í Survivor. Hver kemst af? Hver botnar nokkuð í þessu? Kennarar hafa nóg að gera. Ekki eru þeir leiðinlegri skemmtikraftarnir í nýmyndaðri Menntamálastofnun og raunar nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins sem hafa komið fram með lausnir á námsmati grunnskólans. Nú fáum við kennarar tækifæri til að umreikna okkar gömlu einkunnaskala eða stig, hvort sem þeir voru áður 1 til 10 eða 1 til 4 í bókstafina A, B, C sem er vitaskuld mikil framför og þar að auki B plús og C plús í 10. bekk. Talnagildin gömlu, sem byggðu sums staðar eingöngu á þekkingu nemenda á námsgreinum, víkja. Á bak við hinn nýja kvarða hefur hver skóli fyrir sig komið upp ítarlegum hæfniviðmiðum, byggðum á skóla- og aðalnámskrám svo að halda skyldi að allt væri nú á hreinu varðandi námsmat skólanna. Upplýsingarnar ítarlegri og meiri. Tekið er skýrt fram í nýlegri glærusýningu á heimasíðu Menntamálastofnunar að ekki skuli reiknað meðaltal einkunna enda erfitt að sjá hvernig meðaltal A, A, B, B, B plús og C ætti að vera.Hvers konar hringavitleysa er þetta? En gamanmálunum lýkur ekki með þessu. Nú liggja fyrir tillögur um námsaðstoð við forystumenn framhaldsskólanna. Ef marka má fréttir dagblaða geta sumir skólameistarar þeirra skóla ómögulega skilið þessi námsviðmið þegar þeir þurfa nú að taka á móti nýjum nemendum sem eru með nýstárlegar einkunnir og þurfa því hjálp til að túlka A, B og C að ég tali nú ekki um B plús og C plús. Og til hvaða ráðs grípur Menntamálastofnun til að aðstoða blessaða skólameistarana? Nú skal umreikna ABC og plúsana tvo yfir í tölur á nýjan leik 1 til 4. Þannig gildir A nú sem 4, B plús sem 3,75, B sem 3, C plús 2,75 og C sem 2. Og á glærusýningunni góðu er svo sýnt hvernig megi reikna heildarsummu þessara talnagilda sem auðveldar skólameisturunum að reikna meðaltal og verður að segja að það sé í býsna mikilli mótsögn við þau fyrirmæli til grunnskólanna að alls ekki eigi að reikna út meðaltöl. Nú er mér sem fákænum deildarstjóra í grunnskóla spurn: Hvers konar hringavitleysa er þetta eiginlega? Hefur Ragnar Reykás verið ráðinn í störf við Menntamálastofnun? Hvaða vit er í því að reikna niðurstöður mats úr tölum yfir í ABC og plús en reikna það síðan allt saman yfir í tölur aftur? Og hvers konar vanmat er þetta eiginlega á andlegu atgervi skólameistara framhaldsskólanna?
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun