Hóta ráðherra málsókn vegna laxeldis í sjókvíum Svavar Hávarðsson skrifar 26. janúar 2016 07:00 Eldislax af norsku kyni er náttúruverndarsinnum þyrnir í augum. vísir/sigurjón
Landssamband veiðifélaga (LV) ætlar að láta sverfa til stáls svari Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ekki umleitunum sambandsins vegna fyrirhugaðs sjókvíaeldis á laxi í Ísafjarðardjúpi og Eyjafirði. Í mars í fyrra sendi Óðinn Sigþórsson, þáverandi formaður LV, ráðherra bréf þar sem áformum um eldi á norskum laxi í sjó var harðlega mótmælt. Var þar vísað til nefndarvinnu árið 1988 þar sem sérstaklega var fjallað um reglur um dreifingu norskra laxastofna hér við land. Niðurstaðan, undirrituð af stjórnvöldum og hagsmunaaðilum, var að eldi innfluttra laxastofna skyldi eingöngu heimilt í strandeldisstöðvum og óheimilt með öllu að ala norskan lax við Íslandsstrendur. Jón Helgi Björnsson, formaður LV, hefur nú áréttað erindið og krafist svars, enda sjö mánuðir liðnir þar sem erindið hefur verið margítrekað. „Þessi málsmeðferð ráðuneytisins er með öllu óásættanleg, þar sem nú liggur fyrir að fiskeldisfyrirtæki hafa hafið undirbúning sjókvíaeldis á norska laxinum á báðum þessum svæðum,“ skrifar Jón Helgi og gerir grein fyrir því að lögmaður LV hefur skoðað réttarstöðu veiðiréttareigenda með hliðsjón af samkomulaginu frá 1988, og verði gefin út eldisleyfi fyrir eldinu fyrir vestan og norðan muni LV leita til dómstóla svo hnekkja megi þeirri ákvörðun. Þess utan gerir Jón Helgi grein fyrir því að fáist ekki efnislegt svar fyrir miðjan febrúar muni LV leita til umboðsmanns Alþingis, enda sé málsmeðferð ráðuneytisins ámælisverð og ekki í samræmi við stjórnsýslulög eða góða stjórnsýsluhætti.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira