Framtíð miðbæjarins – "í hvaða liði ertu?“ Hjörleifur Stefánsson skrifar 28. janúar 2016 07:00 Satt að segja er erfitt að blanda sér í umræðuna um skipulags- og byggingarmál miðbæjarins. Hætt er við að maður verði fyrr en varir þvingaður niður í skotgröf öðrum hvorum megin við víglínuna – ella verður maður skotmark beggja. Ég vil taka skýra afstöðu sem hvorugum kann að líka – halda mig á víglínunni. Í annarri skotgröfinni er forsætisráðherra þjóðarinnar ásamt skoðanabræðrum sem vilja knýja arkitekta til að byggja eftir hugmyndum frá upphafi 20. aldar. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að tillaga um að leggja aldar gamla teikningu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins, til grundvallar samkeppni arkitekta um viðbyggingu við Alþingishúsið sé ekki góð. Sá ágæti maður, Guðjón, fylgdist með tímanum og byggingarlist hans þróaðist eins og vera ber. Hann teiknaði hús í alþjóðlegum, klassískum anda í upphafi ferils síns, en síðar snerist hann meira til þjóðlegrar rómantíkur í bland við módernisma. Af hverju skyldum við nú í byrjun 21. aldar taka meira tillit til hins fyrra tímabils? Ég er engu að síður sammála því sjónarmiði að í sögulegri vídd gamla bæjarins séu ómetanleg verðmæti sem okkur ber að gæta eins og sjáaldurs augna okkar og þar sem skemmdir hafa verið unnar á miðbænum í nafni módernismans ættum við að lagfæra þær og gera við það sem eyðilagt hefur verið.Sanntrúaðir módernistar Í hinni skotgröfinni eru sanntrúaðir módernistar. Þegar fúnkis-„stíllinn“ ruddi sér til rúms vildu menn ganga milli bols og höfuðs á fyrri byggingarstílum og töldu þá vera til marks um úrelt viðhorf sem fyrstu módernistarnir hæddust að. Helst ætti að ryðja öllu slíku úr vegi fyrir „nútímabyggingarlist“. Frumkvöðlarnir fullyrtu að fúnkisstefnan væri ekki byggingarstíll heldur vísindalegt viðhorf til hlutverks byggingarlistar í samfélaginu. Fyrstu áratugina eftir að módernisminn kom til Íslands leit þorri arkitekta svo á að sögulegt gildi gamla bæjarins væri lítið sem ekkert og best færi á því að ryðja honum burtu. Fljótlega kom hins vegar í ljós að fúnkisstefnan var bara enn einn stíllinn en hluti af sérstöðu hans var fyrirlitning á sögulegum gildum og illa grunduð upphafning á eigin ágæti sem að hluta til var ímyndað. Hugmyndin um vísindalegar aðferðir módernismans reyndust innantómt skrum. Á hinn bóginn ber að líta til þess að vel hönnuð módernísk bygging getur búið yfir fegurð sem stenst fyllilega samanburð við klassísk meistaraverk á sviði byggingarlistar. Þar sem klassísk bygging og fúnkishús standa saman hlið við hlið fer ekki milli mála að í svipmóti „nútímahússins“ er fólgin andúð á því gamla en ekki öfugt.Þurfa að sýna auðmýkt Það sem við þurfum á að halda við uppbyggingu miðbæjarins er ekki hús sem byggð eru eftir teikningum látinna snillinga og við eigum heldur ekki að byggja þar hús sem með svipmóti sínu lýsa fyrirlitningu á gömlu byggðinni. Byggingar sem reistar eru í sögulegu umhverfi eiga skilyrðislaust að virða mikilvægi hinnar sögulegu víddar og leitast við að bæta hana og styrkja. Þær þurfa að sýna auðmýkt gagnvart þeim umhverfisgæðum sem felast í margbreytileika og mannlegum hlutföllum gömlu húsanna og þær mega gjarna sækja til þeirra fyrirmyndir um hvaðeina sem fallegt er. En jafnframt á nútíma byggingarlist að færa sér í nyt ný efni og -aðferðir og þróa áfram þá hlutfallafræði sem fúnkisstíllinn byggði á. Naumhyggja módernismans getur í höndum snillings skapað klassíska fegurð en oftar verður hún þó leiðinleg og fráhrindandi. Tilvísanir í framúrskarandi þætti í sögulegum byggingum getur gætt nútímabyggingarlist aukinni dýpt og gert hana áhugaverðari en ella. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Bærinn okkar allra - Af hverju skiptir hann máli? Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngur sem virka fyrir Hafnarfjörð Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Að kaupa burt vandann Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gervigreind og fullveldi Linda Heimisdóttir,Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Holland í sókn en stjórnmálin hikandi Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Satt að segja er erfitt að blanda sér í umræðuna um skipulags- og byggingarmál miðbæjarins. Hætt er við að maður verði fyrr en varir þvingaður niður í skotgröf öðrum hvorum megin við víglínuna – ella verður maður skotmark beggja. Ég vil taka skýra afstöðu sem hvorugum kann að líka – halda mig á víglínunni. Í annarri skotgröfinni er forsætisráðherra þjóðarinnar ásamt skoðanabræðrum sem vilja knýja arkitekta til að byggja eftir hugmyndum frá upphafi 20. aldar. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að tillaga um að leggja aldar gamla teikningu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins, til grundvallar samkeppni arkitekta um viðbyggingu við Alþingishúsið sé ekki góð. Sá ágæti maður, Guðjón, fylgdist með tímanum og byggingarlist hans þróaðist eins og vera ber. Hann teiknaði hús í alþjóðlegum, klassískum anda í upphafi ferils síns, en síðar snerist hann meira til þjóðlegrar rómantíkur í bland við módernisma. Af hverju skyldum við nú í byrjun 21. aldar taka meira tillit til hins fyrra tímabils? Ég er engu að síður sammála því sjónarmiði að í sögulegri vídd gamla bæjarins séu ómetanleg verðmæti sem okkur ber að gæta eins og sjáaldurs augna okkar og þar sem skemmdir hafa verið unnar á miðbænum í nafni módernismans ættum við að lagfæra þær og gera við það sem eyðilagt hefur verið.Sanntrúaðir módernistar Í hinni skotgröfinni eru sanntrúaðir módernistar. Þegar fúnkis-„stíllinn“ ruddi sér til rúms vildu menn ganga milli bols og höfuðs á fyrri byggingarstílum og töldu þá vera til marks um úrelt viðhorf sem fyrstu módernistarnir hæddust að. Helst ætti að ryðja öllu slíku úr vegi fyrir „nútímabyggingarlist“. Frumkvöðlarnir fullyrtu að fúnkisstefnan væri ekki byggingarstíll heldur vísindalegt viðhorf til hlutverks byggingarlistar í samfélaginu. Fyrstu áratugina eftir að módernisminn kom til Íslands leit þorri arkitekta svo á að sögulegt gildi gamla bæjarins væri lítið sem ekkert og best færi á því að ryðja honum burtu. Fljótlega kom hins vegar í ljós að fúnkisstefnan var bara enn einn stíllinn en hluti af sérstöðu hans var fyrirlitning á sögulegum gildum og illa grunduð upphafning á eigin ágæti sem að hluta til var ímyndað. Hugmyndin um vísindalegar aðferðir módernismans reyndust innantómt skrum. Á hinn bóginn ber að líta til þess að vel hönnuð módernísk bygging getur búið yfir fegurð sem stenst fyllilega samanburð við klassísk meistaraverk á sviði byggingarlistar. Þar sem klassísk bygging og fúnkishús standa saman hlið við hlið fer ekki milli mála að í svipmóti „nútímahússins“ er fólgin andúð á því gamla en ekki öfugt.Þurfa að sýna auðmýkt Það sem við þurfum á að halda við uppbyggingu miðbæjarins er ekki hús sem byggð eru eftir teikningum látinna snillinga og við eigum heldur ekki að byggja þar hús sem með svipmóti sínu lýsa fyrirlitningu á gömlu byggðinni. Byggingar sem reistar eru í sögulegu umhverfi eiga skilyrðislaust að virða mikilvægi hinnar sögulegu víddar og leitast við að bæta hana og styrkja. Þær þurfa að sýna auðmýkt gagnvart þeim umhverfisgæðum sem felast í margbreytileika og mannlegum hlutföllum gömlu húsanna og þær mega gjarna sækja til þeirra fyrirmyndir um hvaðeina sem fallegt er. En jafnframt á nútíma byggingarlist að færa sér í nyt ný efni og -aðferðir og þróa áfram þá hlutfallafræði sem fúnkisstíllinn byggði á. Naumhyggja módernismans getur í höndum snillings skapað klassíska fegurð en oftar verður hún þó leiðinleg og fráhrindandi. Tilvísanir í framúrskarandi þætti í sögulegum byggingum getur gætt nútímabyggingarlist aukinni dýpt og gert hana áhugaverðari en ella.
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar
Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar
Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun