Erlent

Tuttugu og fjórir drukknuðu við eyjuna Samos

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Tuttugu og fjórir flóttamenn drukknuðu undan strönd grísku eyjunnar Samos í Eyjahafi í nótt. Tíu var bjargað en ellefu er enn saknað. Börn voru á meðal þeirra sem drukknuðu.

Fólkið var á leið frá Tyrklandi þegar báti þess hvolfdi. Síðast á þriðjudag hvolfdi öðrum bát sem var á leið frá Tyrklandi til eyjunnar Kos, með þeim afleiðingum að sjö létu lífið.

Það sem af er þessu mánuði hafa um tvö hundruð manns drukknað í tilraunum sínum til að komast til Grikklands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×