Háskólinn leggur sitt af mörkum í umræðunni Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. janúar 2016 07:00
Háskóli Íslands boðar til fundar í dag um sýrlenska flóttamenn í Evrópu. Fundurinn er sá þriðji í fundaröð Háskólans sem nefnist Fræði og fjölmenning. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í samstarfi við utanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið sem flytja inn fulltrúa frá frjálsu félagasamtökunum Norwegian Refugee Council (NRC). „Stóraukinn straumur flóttafólks frá stríðshrjáðum svæðum, sérstaklega frá Sýrlandi, til Evrópu hefur blásið nýju lífi í umræður um fjölmenningarsamfélagið,“ segir í fundarboði Háskólans en sýrlenskir ríkisborgarar á flótta eru nú um fjórar og hálf milljón og hafa hundruð þúsunda sótt um hæli í Evrópu. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskólans, kemur til með að setja fundinn klukkan 12. Hann segir mikinn vilja innan Háskólans, bæði meðal fræðasviða og stúdenta, til að ræða málin. „Við viljum leggja það af mörkum hvað Háskólinn hefur fram að færa til að treysta umræðuna,“ segir Jón Atli. „Við höfum verið með tvo fundi hingað til og er ráðstefna fyrirhuguð sjötta febrúar um málefnið. Þá verða nokkrar málstofur um mismunandi málefni. Fyrsti fundurinn okkar var í lok nóvember og var hann um fjölmenningu, fjölmiðla og stjórnmál. Þá var annar fundurinn um fjölmenningu og menntun. Í framhaldi af þessari fundaröð viljum við taka fyrir á þessum málstofum ýmislegt sem tengist fjölmenningu,“ segir Jón Atli og bendir á að vel hafi gengið hingað til, alltaf hafi verið fullur salur. Þá segir Jón Atli stefnt að því að halda fundi einu sinni í mánuði í kjölfarið. Í kjölfar fundarsetningar mun Eygló Harðardóttir velferðarráðherra greina frá viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við stríðinu í Sýrlandi og áskorunum vegna aukins straums flóttamanna til Evrópu. Þá mun Auðbjörg Halldórsdóttir, forsvarsmaður Íslensku friðargæslunnar, fjalla um framlag Íslands til mannúðarmála sem tengjast ástandinu í Sýrlandi. Auk þeirra munu tveir liðsmenn NRC flytja erindi. Martin Hartberg, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda hjá NRC, mun fjalla um stöðu mála í Sýrlandi, áhrifum átakanna í Evrópu og starfsemi NRC í tengslum við þau. Þá mun Arvinn E. Gadgil, yfirmaður samstarfs- og stefnumáladeildar hjá NRC taka til máls.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira