Innlent

Kannabis fannst í koddaveri

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Efnin fundust eftir að lögregla var kölluð til vegna hávaða í íbúð á Suðurnesjum.
Efnin fundust eftir að lögregla var kölluð til vegna hávaða í íbúð á Suðurnesjum. vísir
Kannabisefni fundust í koddaveri á Suðurnesjum um síðastliðna helgi. Efnin fundust eftir að lögregla var kölluð til vegna hávaða í íbúð í umdæminu en þegar hún mætti á vettvang til að skakka leikinn tók á móti henni mikil kannabislykt.

Húsráðandi heimilaði leit í íbúðinni sem leiddi til þess að poki með kannabis fannst í koddaveri í svefnherbergi. Málið var afgreitt með skýrslu á vettvangi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Ekki er tilgreint um hversu mikið magn var að ræða.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×