Innlent

Hoffell á leið til hafnar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Varðskipið Þór.
Varðskipið Þór. vísir/daníel
Varðskipið Þór er nú á leið að flutningaskipinu Samskip Hoffell sem er vélarvana djúpt suður af Íslandi. Ferðin gengur vel, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Ráðgert er að varðskipið verði komið að flutningaskipinu um hádegi á morgun og dragi skipið til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×