Drógu ráðningu til baka vegna kynferðisbrots Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. janúar 2016 15:00 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð.
Sveitastjórn Vesturbyggðar hefur dregið til baka ráðningu Kristins Jóhanns Níelssonar sem skólastjóra við Tónlistarskóla Vesturbyggðar. Greint var frá ráðningunni á föstudaginn en í gær upplýsti sveitastjórinn Ásthildur Sturludóttir að ráðningin hefði verið dregin til baka. Við frekari úrvinnslu á gögnum hefði verið fallið frá því að ráðningunni. Einar Bragi Bragason, sem hafði verið ráðinn kennari við skólann, hefði í staðinn verið ráðinn skólastjóri og hæfi þegar störf. Engar frekari skýringar eru gefnar á þeim gögnum sem urðu til þess að ráðningin var skyndilega dregin til baka. Samkvæmt heimildum Bæjarins besta á Ísafirði var sveitastjórninni ekki kunnugt um að Kristinn hefði árið 2008 hlotið skilorðsbundinn 45 daga fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn ungum stúlkum en brotin áttu sér stað árið 2006 þegar Kristinn var tónlistarkennari á Vestfjörðum. Í barnaverndarlögum segir að við ráðningu til stofnana þar sem unnið sé með börnum þurfi ávallt að liggja fyrir sakavottorð og upplýsingar úr sakaskrá hafi umsækjandi hlotið dóm fyrir kynferðisbrot. Kristinn er reynslumikill tónlistarkennari og var síðast við störf sem tónlistarkennari í Vík í Mýrdal árið 2012. Elín Einarsdóttir, oddviti í Mýrdalshreppi. Breyttu starfsháttum í Mýrdalshreppi Í yfirlýsingu Elínar Einarsdóttur, oddvita í Mýrdalshreppi, kemur fram að Kristinn hafi ekki upplýst um yfirvofandi dómsmál á hendur sér við ráðninguna. Sömuleiðis hafi hann ekki upplýst um dóminn þegar hann féll. Í kjölfar þess að sveitastjórn varð meðvituð um dóminn var honum boðið að láta af störfum árið 2012. Vakin er athygli á því að í kjölfar þessa máls hafi það orðið skilyrðislaus krafa hjá Mýrdalshreppi að fólk skilaði sakavottorði áður en það hæfi störf hjá sveitafélaginu. Kristinn hafði þó hreint sakavottorð þegar hann hóf störf. Brot hans fólust í að leggjast nakinn í rúm með tveimur ungum stúlkum, sem voru nemendur, en með því taldi dómurinn að hann hefði sært blygðunarsemi þeirra að því er fram kemur í dómnum og RÚV greindi fyrst frá. Þurfti hann að greiða annarri stúlkunni 300 þúsund krónur í bætur, en brotið átti sér stað á heimili hennar, en hinni 200 þúsund krónur.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira