RÚV þakkar og heilsar af reisn Gunnlaugur Stefánsson skrifar 14. janúar 2016 07:00 Áramót eru einstök stund. Þá skartar Ríkisútvarpið því besta sem hæfir og ber menningu þjóðar vitni. Það er bæn. Gamla árið er kvatt með bænarsálmi sr. Valdimars Briem, Nú árið er liðið í aldanna skaut. Svo gengur nýja árið í garð og því heilsað með þjóðsöngnum Ó, Guð vors lands, ó, lands vors Guð, vér lofum þitt, heilaga, heilaga nafn. Það er bænin sem sameinar þjóð um menningu sína og Ríkisútvarpið miðlar af rótum sínum. Þakkar og heilsar með bæn og lofgjörð. Mikið er það falleg hefð. Skýrara getur það ekki verið. Kristinn siður er kjölfestan í þjóðlífinu. Ríkisútvarpið er okkur hjartfólgið og inngróið í heimilislíf landsmanna. Hér er í engu hallað á aðra fjölmiðla sem gegna dýrmætu hlutverki og verða að njóta svigrúms og stuðnings til starfa. En stofnun útvarpsins hafði í för með sér menningarbyltingu. Þegar litið er yfir farinn veg í sögu Ríkisútvarpsins, þá er fátt sem auðgað hefur frekar starfsemi þess en tónlistin. Þar skipar kristin trú stóran sess og ekki síst á hátíðum. Engin trúarbrögð óma eins af tónlist og kristin trú. Og stafar frá englum á Betlehemsvöllum sem lofuðu Guð „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðum og velþóknun Guðs yfir mönnunum“. Og í Davíðssálmum Gamla testamentisins ómar tónlistin í gegnum ljóðlínurnar „Syngið Drottni nýjan söng“. Löngu síðar kom svo siðbót Martins Lúthers sem lagði sérstaka áherslu á tónlistina. Lúther var mikill tónlistarmaður, lék sjálfur á hljóðfæri og samdi lög og ljóð til notkunar í guðsþjónustunni. Safnaðarsöngurinn var honum hjartans mál. Siðbótin hafði afgerandi áhrif á eflingu tónlistar í Evrópu. Svo kom Jóhann Sebastian Bach, mikill trúmaður af lútherskum sið, oft nefndur fimmti guðspjallamaðurinn vegna stórbrotinna tónverka sinna, sem gjarnan voru samin með yfirskriftinni „Guði einum til dýrðar“, og hafði gríðarmikil áhrif.Miðla af andans auði Siðbótin á Íslandi fyllti kirkjuna af sálmum og safnaðarsöng. Með siðbótinni hófst útgáfa sálmabókarinnar fyrir almenning og prentuð í fyrstu prentsmiðju landsins á Hólum, sem kirkjan stofnaði, og með tímanum varð sálmabókin til á hverju heimili. Ætli sálmabókin sé bönnuð núna í grunnskólum í Reykjavík, ef kennari vildi nýta hana til að uppfræða börnin um menningararf okkar? Sálmabókin hvatti til sálmakveðskapar, tónsmíða og söngs. Fátt hafði meiri áhrif á þróun tónlistar um aldir á Íslandi en kirkjutónlistin. Síðar komu kirkjukórarnir og organistarnir. Við þekkjum hvað þetta fólk hefur lagt mikið af mörkum og nært menningarlífið í landinu. Einnig sérstakar kirkjutónlistarhátíðir sem vakið hafa verðskulduga athygli. Og allt tónlistarfólkið sem kemur fram í kirkjum landsins og sálmaskáldin sem miðla af andans auði sínum. Mikill söngur ómar á meðal þjóðarinnar í guðsþjónustunum og sjaldan syngja samtals fleiri á Íslandi en í kirkjunum á aðfangadagskvöldi. Tónlistin og sálmarnir í kirkjunni vega þungt í íslenskri menningu og fóstraði Ríkisútvarpið og gerir enn og þjóðin nýtur innilega alla daga. Þannig verður trúin aldrei fjötruð á bás einkalífsins, heldur þráir að flæða um þjóðlífið í andans mætti sínum. Það staðfestir reynsla okkar, t.d. hvernig við kveðjum liðið ár og heilsum nýju. Þetta er gott að hugleiða á tímum, þegar háværar raddir vilja úthýsa kristnum sið úr vitund þjóðar, menningu og gildismati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun