Innlent

Tilbúin til að ganga lengra varðandi málefni lögreglunnar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra. Vísir/Anton
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir mikilvægt að efla traust á störf lögreglunnar í landinu. Hún segist tilbúin til að taka ákveðnari skref í þeim efnum og útilokar ekki aðkomu þingsins að ákveðnum málefnum lögreglunnar.

Þetta kom fram í máli hennar í Kastljósi í kvöld aðspurð um þá ólgu sem ríkt hefur innan lögreglunnar að undanförnu og erindi Landssambands lögreglumanna til Umboðsmanns Alþingis í gær. Hún sagði að á því þyrfti að taka sem og þeim kvörtunum sem lögreglunni berist.

„Við erum með í smíðum í ráðuneytinu frumvarp sem á að taka á kvörtunum til lögreglunnar. Þar er gert ráð fyrir ákveðinni stjórnsýslunefnd sem hefur ákveðið hlutverk fyrir höndum. En ég velti því fyrir mér hvort það sé ástæða til að hreinlega ganga lengra. Traustið á lögregluna í landinu, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur um land allt, er öllu æðra þegar kemur að virðingu gagnvart henni og þeim störfum sem hún sinnir. Þannig að mér finnst koma til greina að stíga ákveðnara skref í því hvort þingið sé meira í tengslum við það. Mér finnst koma til greina að skoða það,“ sagði Ólöf.

„Það væri kannski gagnlegt á ákveðnum tímapunkti að geta átt trúnaðarsamtal við nefndir þingsins þegar kemur að tilteknum málum hjá lögreglunni. Mér finnst koma til greina að skoða það.“

Þá ræddi hún jafnframt þann óróleika og samskiptavanda sem hafi átt sér stað innan lögreglunnar að undanförnu. Því hafi verið fenginn vinnusálfræðingur til að taka út vinnustaðinn. Treysta þurfi embættinu til að taka á þeim málum sjálft, en að ráðuneytið muni fylgjast grannt með því hvort kvörtunum lögreglumanna sé tekið alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×