Frestunarárátta eða lausnir? Teitur Guðmundsson skrifar 15. janúar 2016 10:38 Teitur Guðmundsson.
Það dylst engum sem fylgist með fréttum frá degi til dags að það eru mörg vandamálin í heilbrigðisþjónustu landsmanna. Síðasta ár hefur verið hlaðið fregnum af þeim, vinnudeilur, kjör, aðstaða og aðbúnaður hafa verið býsna oft í umræðunni og oftar en ekki verið að fjalla um flaggskipið Landspítala. Öryggi sjúklinga þar og möguleika spítalans á að veita bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hefur verið tíðrætt. Ég man ekki hversu oft við erum alveg að fara fram af hinni margumtöluðu bjargbrún, en einhvern veginn komumst við ætíð hjá því með undraverðum hætti. Þá má ekki gleyma þeim umkvörtunum sem koma frá öðrum stofnunum sem glíma við fjárskort og skort á mannafla líkt og heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landi og vanda hennar að rækja sitt hlutverk. Nú hafa bæst við háværar raddir um vanda eldri borgara með heimaþjónustu, dvalar- og hjúkrunarrými og mikinn rekstrarvanda þessara heimila sem og þjónustu við þennan hóp samfélagsins sem skapaði það sem við í dag þekkjum sem Ísland. Uppnám er sem stendur varðandi nýliðun sérfræðinga á samningi við Sjúkratryggingar sem var lokað um áramótin og ekki sér fyrir endann á og þá bíða heimilislæknar eftir útspili um uppbyggingu í heilsugæslu og möguleikum á fjölbreyttari rekstrarformum. Biðlistar eru að lengjast og óljóst er hvernig verður brugðist við rétti sjúklinga til að sækja sér þjónustu annars staðar þar sem hún er veitt. Ofan á allt þetta er kerfið í heild sinni háð því að góðgerðarfélög, fyrirtæki og aðrir viðlíka aðilar gefi tæki, tól og fjármuni svo hjólin haldi áfram að snúast. Það getur ekki verið eðlilegt, né líklegt til að halda áfram í óbreyttri mynd. Ég er eflaust að gleyma einhverju en nóg er nú samt, það skortir einhverja framtíðarsýn á það hvernig á að leysa málin og er ráðherra ekki í öfundsverðri stöðu með alla þá sem krefjast meiri fjármuna og þjóðar sem að sjálfsögðu krefst þess að hún fái þá þjónustu sem hún telur sig eiga skilið.Forgangsröðun og framtíðarsýnÞað eru aldrei til peningar, sama hvernig árar, í það minnsta ekki nógir peningar til að gera það sem allir ætlast til. Forgangsröðun er fallegt orð sem er mikið notað, en oftsinnis er það býsna óljóst hvernig sú röðun fer fram og hver raðar. Hagur ríkisins fer batnandi sem er vel og vonandi náum við að snúa ofan af þessu með tímanum, en það gerist ekki nógu hratt. Við verðum líka að hafa kjark og taka þær ákvarðanir sem þarf til að leysa þá hnúta sem festast meir og meir. Tíðrætt er um fráflæðivanda Landspítala, hann er vissulega til staðar, sjúklingar geta ekki útskrifast í úrræði sem henta betur vegna skorts á rýmum utan hans. Landspítalinn gæti þá ræktað sitt hlutverk enn frekar. Það má líka horfa á vandann með þeim augum að spítalinn glími til viðbótar við aðflæðivanda vegna undirmönnunar í heilsugæslunni og ónógrar heimaþjónustu. Þarna þarf öflugt átak og myndarlegt ef leysa á vandann og við bíðum frétta af slíku. Tímasetta langtímaáætlun þarf í þessum efnum sem tekur á þeim grunnvanda sem kerfið býr við. Auk þess að gera sér af alvöru grein fyrir þeirri breyttu aldurssamsetningu þjóðarinnar sem við sjáum á næstu áratugum, auknum kostnaði vegna nýrra lyfja, meðferðarmöguleika og mönnunarþarfar. Kjark til að forgangsraða og innleiða nýja hugsun með nýrri tækni og möguleikum hennar varðandi fjarþjónustu svo dæmi sé tekið. Það hefur engum enn tekist að leika á elli kerlingu og okkur mun ekki takast það heldur, við þurfum að fagna henni og vinna með henni eins og mögulegt er.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira