Vinnuveitendum áfram almennt óheimilt að skoða einkaskilaboð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. janúar 2016 20:30
Dæmi eru um að vinnuveitendur hafi skoðað einkapóst starfsmanna sinna hér á landi þrátt fyrir að slíkt sé óheimilt. Forstjóri Persónuverndar segir nýlegan dóm Mannréttindadómstóls Evrópu engu breyta þar um. Í vikunni komst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu að vinnuveitendur megi skoða einkaskilaboð sem starfsmenn þeirra fá senda á vinnutíma. Dómurinn hefur vakið nokkra athygli þar sem fram kemur að þetta eigi við um samskipti starfsmannanna í gegnum spjallforrit og vefpóstforrit. Forsaga málsins er sú að rúmenskum verkfræðingi var sagt upp störfum árið 2007 fyrir að spjalla við kærustu sína og bróður í gegnum spjallforritið Yahoo Messenger á vinnutíma. Forstjóri Persónuverndar segir að varast beri að lesa of mikið í dóminn þar sem lykilatriði sé að umræddur starfsmaður hafi vitað að strangar reglur giltu um þessi mál á hans vinnustað. „Þannig að dómurinn leggur í rauninni mjög mikið upp úr því að starfsmaðurinn í rauninni brýtur geng reglum sem að honum áttu að vera kunnar. Vinnutengd mál þurftu að vera á vinnutíma og algjörlega óheimilt að nota þetta í einkatilgangi,“ segir Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar. Þannig sé vinnuveitendum á Íslandi almennt áfram óheimilt að skoða tölvupósta og einkaskilaboð starfsmanna sinna. Helga segir dæmi um að vinnuveitendur hér á landi hafi lesið einkapósta starfsmanna sinna án þess að slíkt sé heimilt. „Vissulega hafa komið upp dæmi um það,“ segir Helga.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira