Lífið

Hættið öllu sem þið eruð að gera: Bieber rakst óvænt á Adam Sandler

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt atvik.
Skemmtilegt atvik. vísir
Íslandsvinurinn Justin Bieber rakst á vin sinn Adam Sandler úti á götu í gær og aðeins tilviljun réði því að vinur hans var akkúrat að taka upp myndband þegar þeir sáu hvorn annan.

Adam Sandler er einn vinsælasti gamanleikari heims og hefur hann leikið í fullt af óborganlegum myndum. Það þarf varla að kynna Justin Bieber fyrir þjóðinni en hann kom til landsins í október á síðasta ári og mun halda tvenna tónleika í Kórnum, 8. og 9. September á þessu ári. Bieber er líklega stærsta nafnið í tónlistarheiminum í dag.

„Það var ekki planið að ná þessu á myndbandi. Þetta var algjör tilviljun!!! Adam Sandler er lifandi goðsögn,“ segir Justin Bieber á Instagram-síðu sinni þar sem myndbandið birtist.

Totally did not plan getting that on video.!!! Super random Adam sander living legend

A video posted by Justin Bieber (@justinbieber) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×