Innlent

Færri leituðu á slysadeild vegna flugeldaslysa en oft áður

Atli Ísleifsson skrifar
Nýtt ár gekk í garð í nótt.
Nýtt ár gekk í garð í nótt. Vísir/Egill
„Það hefur verið töluvert að gera hjá okkur á bráðamóttökunni. Við höfum séð mikið af pústrum og slysum í tengslum við áfengi. Við höfum séð tíu flugeldaslys í nótt. Þar af eitt augnslys,“ segir Jón Magnús Kristjánsson bráðalæknir á bráðadeild Landspítalans.

Hann segir að svo virðist sem að flugeldaslysum haldi áfram að fækka en í fyrra voru þau um tuttugu um áramótin og þrjátíu árin þar á undan. „Þessi nótt hefur verið rólegri heldur en hefur verið mörg undanfarin ár. Sérstaklega þegar kemur að flugeldaslysunum en við höfum séð umtalsverðan fjölda af slagsmálum og líkamsmeiðingum,“ segir Jón.

Talsmaður slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir að það hafi verið nokkuð mikið að gera, mestmegnis sjúkraflutningar. „Það voru þrjú tiltölulega lítil útköll á dælubíla. Það var umferðaróhapp við Straum í Hafnarfirði þar sem einn var fluttur á slysadeild. Þá var eldur í gám við Smáralind. Svo var þó nokkur erill á sjúkrabílunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×