Obama gefst upp á þinginu: Kynnir nýjar takmarkanir á byssueign Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2016 15:49 Barack Obama lætur af starfi forseta Bandaríkjanna í janúar 2017. Vísir/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti hyggst kynna nýjar takmarkanir á byssueign í Bandaríkjunum í byrjun næstu viku. Um að ræða röð forsetaákvarðana, þar sem sneitt er framhjá löggjafarvaldinu, það er Bandaríkjaþingi.Í frétt Washington Post kemur fram að Obama beiti forsetavaldi sínu með þessum hætti þar sem hann segi Bandaríkjaþingi hafa mistekist að bregðast við byssuvanda ríkisins. Byssueign hefur um árabil mikið verið í umræðinni í Bandaríkjunum vegna tíðra skotárása. Obama mun funda með Loretta Lynch dómsmálaráðherra eftir helgi til að leggja lokahönd á röð forsetaákvarðana sem kynntar verða í næstu viku, þeirra á meðal takmarkanir á byssueign. Forsetinn hyggst meðal annars víkka út heimildir til að kanna bakgrunn byssukaupenda. Forsetinn sagði í útvarpsávarpi að hann bregðist við þar sem hann hafi fengið of mörg bréf frá foreldrum, kennurum og börnum til að einfaldlega sitja hjá. „Ég fæ einnig bréf frá ábyrgum byssueigendum sem syrgja í hvert sinn sem þessir harmleikir eiga sér stað; sem eru sammála mér að annar viðauki stjórnarskrárinnar tryggi rétt fólks til að bera vopn; og eru sammála mér í þeirri trú að við getum verndað þann rétt á sama tíma og við komum í veg fyrir að þessi óábyrgi, hættulegi og fámenni hópur valdi stórkostlegum skaða,“ segir forsetinn. Washington Post greinir frá því að Obama hafi fyrir alvöru byrjað að kanna hvernig hann gæti takmarkað byssueign eftir árásina í Umpqua háskólanum í Roseburg í Oregon-ríki í október. Obama lætur af starfi forseta Bandaríkjanna í janúar 2017.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira