Erlent

Yfirbuguðu brennuvarg vopnaðan sveðju

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Brandon Morgan var yfirbugaður með rafbyssu
Brandon Morgan var yfirbugaður með rafbyssu skjáskot
Augnablikið þegar lögreglumaður yfirbugaði brennuvarg á gamlársdag, vopnaðan sveðju, náðist á myndavél í búningi lögreglumannsins.

Á myndbandinu sést hvernig lögreglumaðurinn, vopnaður rafbyssu, gengur inn á heimili mannsins í West Jordan í Utah-fylki í Bandaríkjunum í fylgd annarra lögreglumanna.

Lögreglumaðurinn sést ganga inn í stofu hússins þar sem brennuvargurinn, Brandon Morgan, hafði borið eld að gluggatjöldunum.

Hann var ber að ofan og illa skorinn á úlnliðnum þegar lögreglumenninir komu að honum. Eldurinn dreifðist um húsið og urðu lögreglumennirnir að bera Morgan meðvitundarlausan úr húsi sínu.

Í samtali við Fox news sagði einn lögreglumannanna að aðstæður hafi verið erfiðar. Morgan hefur verið ákærður fyrir íkvekju, líkamsárás, heimilsofbeldi og dýraníð. Hann situr nú í gæsluvarðhaldi og varð ekki meint af rafbyssuskotinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×