Innlent

Sjö sækja um forstjórastöðuna á Litla-Hrauni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fimm karlar og tvær konur sækja um stöðuna á Litla Hrauni og Sogni.
Fimm karlar og tvær konur sækja um stöðuna á Litla Hrauni og Sogni. Mynd/MHH
Sjö umsækjendur eru um stöðu forstöðumanns fangelsisins á Litla Hrauni og Sogni sem var nýlega auglýst laus til umsóknar eftir að Margrét Frímannsdóttir sagði upp störfum.

Umsækjendurnir eru; Ari Björn Thorarensen, Arnar Þór Arnarsson, Arndís Soffía Sigurðardóttir, Bergdís Hólm Davíðsdóttir, Halldór Valur Pálsson, Haukur Örn Jónsson og Sigurjón Halldór Birgisson.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. febrúar 2016. Tryggvi Ágústsson fangavörður gegnir stöðunni fram að þeim tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×