Innlent

Bifreið valt út í hraun

Birgir Olgeirsson skrifar
Sjúkrabíll kom á vettvang slyssins ásamt lögreglu.
Sjúkrabíll kom á vettvang slyssins ásamt lögreglu. Vísir/Pjetur
Bílvelta varð á Suðurstrandarvegi austan við Grindavík í gærdag. Ökumaður hafði misst bifreiðina út í kant með fyrrgreindum afleiðingum.

Fór hún niður brattan hlíðarkant eina 50 metra út í hraunið og stöðvaðist í hraunbolla. Ökumaður kenndi verkja eftir atvikið en farþegi sem var með honum í bifreiðinni slapp ómeiddur.

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var dráttarbifreið fengin til að fjarlægja bifreiðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×