Innlent

Lögreglan rannsakaði tryllingslegt óánægjuöskur í Borgarnesi

Birgir Olgeirsson skrifar
Óánægjuöskrið heyrðist vel á milli hæða að sögn lögreglunnar á Vesturlandi.
Óánægjuöskrið heyrðist vel á milli hæða að sögn lögreglunnar á Vesturlandi. Vísir/Pjetur
Lögreglan á Vesturlandi greinir frá manni sem rak upp tryllingslegt óánægjuöskur svo heyrðist vel á milli hæða í íbúðablokk í Borgarnesi í byrjun árs. Samkvæmt lögreglunni var maðurinn um þrítugt og missti stjórn á skapi sínu vegna úrslita tölvuleiks sem hann var með í höndunum. Lögreglan segir nágranna mannsins hafa sett sig í samband við lögreglu þar sem talið var ljóst að eitthvað mjög alvarlegt væri í gangi.

Lögreglan segist hafa verið snögg á vettvang en maðurinn er sagður ekki hafa svarað strax því hann á að hafa skellt sér í kalda sturtu til að ná sér niður. Lögreglan segist ekki vita hvaða tölvuleik maðurinn var að spila en segir þetta vera dæmi um hvernig fullorðnir menn geta lifað sig inn í óraunveruleikann í tölvu- og tækniheimi nútímans með þessum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×