Sameining safna enn í umræðu Svavar Hávarðsson skrifar 6. janúar 2016 06:00 Þjóðminjasafnið, auk hinna höfuðsafnanna, er sagt eiga heima innan einnar stofnunar til viðbótar við fleiri minni söfn. VÍSIR/ANTON BRINK
Hluta hugmynda Viðskiptaráðs um fækkun ríkisstofnana má finna stað í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um aukna framleiðni og skilvirkni í ríkisrekstri frá 2013. Tillögurnar lúta að sameiningu á yfirstjórn safna á vegum hins opinbera, og þar á meðal allra höfuðsafnanna þriggja. Viðskiptaráð birti 30 tillögur að fækkun ríkisstofnana um miðjan desember og lagði reyndar til að ríkisstofnunum yrði fækkað um rúmlega 100, úr 188 í 70. Ein þessara tillagna laut að samrekstri safna sem ríkið rekur í dag, eða níu talsins. Slíkur samrekstur, samkvæmt hugmyndum ráðsins, myndi fela í sér sameiningu án þess að slíkt þurfi að fela í sér breytingu á fjölda eða skipulagi starfsstöðva, en hægt væri að ná fram hagræðingu í stjórnunarkostnaði, stoðþjónustu, samræmdum vinnubrögðum og sérfræðiþekkingu án þess að draga úr kjarnastarfsemi á hverjum stað. Í nóvember 2013 birti hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar 111 sparnaðartillögur og tvær þeirra, númer 36 og 37, fjölluðu um að yfirstjórnir Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Einars Jónssonar og Listasafns Íslands yrðu sameinaðar, annars vegar. Hins vegar að yfirstjórnir Landsbókasafns Íslands, Kvikmyndasafns Íslands, Hljóðbókasafns Íslands og Þjóðskjalasafns Íslands yrðu sameinaðar. Hugmynd Viðskiptaráðs er að öll söfnin sem hér eru nefnd fyrir ofan rynnu saman í eina stofnun – Safnastofnun. Eftir að tillögurnar lágu fyrir var stofnaður samráðshópur um innleiðingu og eftirfylgni þeirra með fulltrúum allra ráðherra. Nokkrar þeirra hafa þegar náð fram að ganga, en minna farið fyrir öðrum.Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndarVigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sem sat einnig í hagræðingarhópnum, segir að tillögur Viðskiptaráðs hafi efnislega ekkert komið til umræðu í fjárlaganefnd eða í hennar hópi. Hugmynd hagræðingarhópsins telur hún heldur ekki hafa náð lengra enda hafi „kerfið tekið öllum þessum hugmyndum mjög illa. Kerfið vill ekki minnka; það ver sig sjálft. Það er ekki nokkur leið að hreyfa við neinu, enda hefur kerfið sína málsvara á þingi, samanber umræðuna um Þróunarsamvinnustofnun“. Þar vísar Vigdís til andstöðu stjórnarandstöðunnar á Alþingi á liðnum vikum. Hugmyndin um eina stofnun sem annaðist öll söfn í umsjón ríkisins telur Vigdís hins vegar vera algjörlega borðleggjandi og eiga að vera einfalda í framkvæmd. „Heilbrigð skynsemi segir okkur að þetta sé eina vitið,“ segir Vigdís.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira