Um nema í klínísku námi á Landspítala Páll Óli Ólason skrifar 7. janúar 2016 08:30 Árið 2015 var sérlega erfitt fyrir nema Háskóla Íslands sem stunduðu klínískt nám við Landspítala. Verkföll, bæði í háskólanum og á meðal heilbrigðisstarfsfólks á Landspítala, settu strik í reikninginn. Margir misstu út mikilvæga kennslu og aðrir urðu fyrir röskunum á lokaprófum. Allt þetta er vonandi að baki og óskin er sú að árið 2016 verði verkfallslaust. Nú þegar árið 2015 er á enda er ekki úr vegi að líta björtum augum á framtíðina. Í byrjun nóvember framkvæmdi Sviðsráð Heilbrigðisvísindasviðs Stúdentaráðs Háskóla Íslands könnun á meðal þeirra nema sviðsins sem stunda verklegt nám á Landspítala. Var þetta í þriðja sinn sem Sviðsráðið gerir slíka könnun en hún er mikilvægt vopn í baráttu stúdenta, ekki einungis til að knýja fram breytingar heldur einnig til að veita aðhald. Í ár var ákveðið að þema könnunarinnar yrði samanburður á niðurstöðunum í ár við niðurstöður ársins í fyrra. Alls voru spurningarnar 12 talsins og var m.a. spurt út í aðstöðu nema, hvort ábyrgð væri í samræmi við kunnáttu, hvort nemendur gætu hugsað sér Landspítalann sem framtíðarvinnustað og um viðhorf þeirra til heilbrigðismála og framtíðar íslensks heilbrigðiskerfis. Alls voru þátttakendur í ár 274 af 388 nemum í verknámi, og svarhlutfallið því rúm 70%. Niðurstöðurnar í ár svipuðu til ársins á undan en meirihluta nema finnst aðstaða ekki við hæfi og að klínískir kennarar hafi ekki tíma til að sinna kennslu nægilega vel. Flestir eru sammála því að ábyrgðin sem nemar eru látnir axla í verklegu námi sé í samræmi við reynslu. Aðeins 16% nema hafa jákvætt viðhorf til heilbrigðismála hérlendis sem er þó marktæk breyting til hins betra þar sem mun færri hafa neikvætt viðhorf samanborið við árið á undan. Eins hefur orðið marktæk breyting á viðhorfi til framtíðar íslensks heilbrigðiskerfis, 34% hafa jákvætt viðhorf samanborið við 19% í fyrra. Þrátt fyrir að niðurstöðurnar í ár séu í heildina líkar niðurstöðunum frá því í fyrra og enn sé ýmislegt sem þurfi að laga sýna þær breytingar í átt til hins betra. Það er mikilvægt að fylgjast áfram með gangi mála og ekki má gleyma þeim áhrifum sem nemar geta haft á framgang eigin kennslu. Kannanir sem þessar eru mikilvægt vopn í baráttu okkar til betra náms. Við vonum að bjartari tímar séu framundan. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Árið 2015 var sérlega erfitt fyrir nema Háskóla Íslands sem stunduðu klínískt nám við Landspítala. Verkföll, bæði í háskólanum og á meðal heilbrigðisstarfsfólks á Landspítala, settu strik í reikninginn. Margir misstu út mikilvæga kennslu og aðrir urðu fyrir röskunum á lokaprófum. Allt þetta er vonandi að baki og óskin er sú að árið 2016 verði verkfallslaust. Nú þegar árið 2015 er á enda er ekki úr vegi að líta björtum augum á framtíðina. Í byrjun nóvember framkvæmdi Sviðsráð Heilbrigðisvísindasviðs Stúdentaráðs Háskóla Íslands könnun á meðal þeirra nema sviðsins sem stunda verklegt nám á Landspítala. Var þetta í þriðja sinn sem Sviðsráðið gerir slíka könnun en hún er mikilvægt vopn í baráttu stúdenta, ekki einungis til að knýja fram breytingar heldur einnig til að veita aðhald. Í ár var ákveðið að þema könnunarinnar yrði samanburður á niðurstöðunum í ár við niðurstöður ársins í fyrra. Alls voru spurningarnar 12 talsins og var m.a. spurt út í aðstöðu nema, hvort ábyrgð væri í samræmi við kunnáttu, hvort nemendur gætu hugsað sér Landspítalann sem framtíðarvinnustað og um viðhorf þeirra til heilbrigðismála og framtíðar íslensks heilbrigðiskerfis. Alls voru þátttakendur í ár 274 af 388 nemum í verknámi, og svarhlutfallið því rúm 70%. Niðurstöðurnar í ár svipuðu til ársins á undan en meirihluta nema finnst aðstaða ekki við hæfi og að klínískir kennarar hafi ekki tíma til að sinna kennslu nægilega vel. Flestir eru sammála því að ábyrgðin sem nemar eru látnir axla í verklegu námi sé í samræmi við reynslu. Aðeins 16% nema hafa jákvætt viðhorf til heilbrigðismála hérlendis sem er þó marktæk breyting til hins betra þar sem mun færri hafa neikvætt viðhorf samanborið við árið á undan. Eins hefur orðið marktæk breyting á viðhorfi til framtíðar íslensks heilbrigðiskerfis, 34% hafa jákvætt viðhorf samanborið við 19% í fyrra. Þrátt fyrir að niðurstöðurnar í ár séu í heildina líkar niðurstöðunum frá því í fyrra og enn sé ýmislegt sem þurfi að laga sýna þær breytingar í átt til hins betra. Það er mikilvægt að fylgjast áfram með gangi mála og ekki má gleyma þeim áhrifum sem nemar geta haft á framgang eigin kennslu. Kannanir sem þessar eru mikilvægt vopn í baráttu okkar til betra náms. Við vonum að bjartari tímar séu framundan.
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun