Byggja upp háskólanám í kvikmyndagerð Sæunn Gísladóttir skrifar 8. janúar 2016 16:45 Vænta má að nemendur geti strax á nýju ári hafið nám í kvikmyndagerð á háskólastigi. vísir/ernir
Um áramótin undirrituðu Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Ástráður Eysteinsson fráfarandi forseti Hugvísindasviðs og Guðmundur Hálfdánarson nýr forseti Hugvísindasviðs viljayfirlýsingu þess efnis að að Hugvísindasvið starfi með Kvikmyndaskólanum að uppbyggingu náms á háskólastigi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þetta kemur fram á vef Kvikmyndaskóla Íslands. Ætlunin er að tveggja ára námsbrautir Kvikmyndaskólans og kvikmyndafræði innan Íslensku- og menningardeildar H.Í. verði metnar til BA-gráðu. Stefnt er að því að ljúka samningum um námið nú á vorönn, en í tengslum við samninginn mun Kvikmyndaskólinn undirgangast úttekt óháðra aðila. Námið eykur mjög möguleika kvikmyndagerðarmanna til menntunar og er því óhætt að segja að vilji skólanna tveggja til samstarfs sé stórtíðindi fyrir kvikmyndagerð á Íslandi. Mikill uppgangur greinarinnar hér á landi undanfarin ár hefur sýnt að þörfin fyrir háskólamenntað starfsfólk er gríðarlega aðkallandi og augljóst er að hlúa þarf að þeirri menntun hér á landi. Vænta má að nemendur geti strax á nýju ári hafið nám sem að loknu matsferli verði metið til háskóleininga í hinu nýja námi í kvikmyndagerð, hafi þeir á annað borð þegar lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Þetta skipulag mun skerpa alla menntunarferla fyrir þá sem vilja nema kvikmyndagerð eða leiklist. Ungmenni sem vilja mennta sig í faginu geta byrjað á því að sækja kvikmyndabrautir framhaldsskólanna, t.d. í Borgarholtsskóla, Fjölbrautarskólanum í Garðabæ og víðar, síðan farið í grunnnámið í samstarfi KVÍ og HÍ, og að lokinni BA gráðu farið beint í meistaranám. Fyrr í desember gerði Kvikmyndaskóli Íslands þjónustusamning við menntamálaráðuneyti til næstu þriggja ára og sætir þessi viðbót við það samningaferli miklum tíðindum fyrir kvikmyndamenntun á Íslandi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira