Bjartsýnn á niðurstöðu sem sátt verður um Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. janúar 2016 07:00 Stjórnarskrárnefnd undir forystu Páls Þórhallssonar stefnir á að skila niðurstöðu um breytingartillögur við upphaf þings 21. janúar. vísir/anton brink
Stjórnarskrárnefnd, undir forystu Páls Þórhallssonar, fundaði í gær og fundar aftur á mánudag um tillögur á breytingum á stjórnarskránni. Rætt er um fjögur meginefni, sem gerðar yrðu breytingar á. Það eru ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum, þjóðaratkvæðagreiðslu að kröfu kjósenda, um umhverfisvernd og um framsal valds vegna alþjóðasamstarfs. Stefnt er á að nefndin skili forsætisráðherra niðurstöðu um breytingartillögur fyrir upphaf þings 21. janúar. Enn er óvíst hvort það verða sameiginlegar niðurstöður, eða byggðar á ósamhljóma álitum. Páll Þórhallsson segist þó vera bjartsýnismaður að eðlisfari. „Þótt sumum finnist þetta ganga hægt, þá hefur mér liðið þannig að það hafi eitthvað þokast á hverjum fundi.“ Nefndin hefur rætt um að ákvæði um þjóðaratkvæði geri ráð fyrir því að undirskriftir 15 prósenta atkvæðisbærra manna þurfi til þess að knýja fram atkvæðagreiðslu. Minnst 25 prósent atkvæðisbærra manna þurfi að hafna lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu til að koma í veg fyrir að þau öðlist gildi. Nefndin vill því nokkuð þrengri skilyrði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum en stjórnlagaráð gerði ráð fyrir árið 2011. Í frumvarpi stjórnlagaráðs var gert ráð fyrir að tíu af hundraði kjósenda gætu krafist þjóðaratkvæðis um lög. Rætt hefur verið um það hvort í ákvæðinu eigi að vera undanskilin frumvörp um fjárlög, skattalög og lög til að fylgja þjóðréttarlegum skuldbindingum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur náðst sátt um að undanskilja frumvörp af þessu tagi. Enn er deilt um það hvort meiriháttar þingsályktanir, eins og tillögur að rammaáætlun, verði undanskildar. Ef samstaða næst á meðal formanna stjórnmálaflokkanna, um að leggja fram frumvarp á Alþingi um breytingar á stjórnarskrá á grundvelli tillagna nefndarinnar, væri hægt að fara þrjár mismunandi leiðir til þess að afgreiða þær breytingar. Það væri hægt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu, að lokinni afgreiðslu á Alþingi. Þá þyrfti að gera það í fyrsta lagi sex mánuðum eftir afgreiðsluna á þingi og í síðasta lagi níu mánuðum seinna. Ókosturinn við þessa leið yrði sá að ef hún yrði farin yrði mjög stutt í þingkosningar og þátttaka í slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu yrði mögulega takmörkuð. Önnur leið, sem áður hefur verið farin, er að breytingarnar yrðu afgreiddar á Alþingi. Svo væri þing rofið og breytingarnar samþykktar á nýju þingi. Þriðja leiðin væri mögulega sú að nota gömlu aðferðina en nota ráðgefandi atkvæðagreiðslu samhliða þingkosningum.
Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Fleiri fréttir Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Sjá meira