Innlent

Ólöf vill áfram eftirlit með lögreglu

Snærós Sindradóttir skrifar
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að embætti héraðssaksóknara spili veigamikla rullu í eftirliti með lögreglu.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að embætti héraðssaksóknara spili veigamikla rullu í eftirliti með lögreglu. Fréttablaðið/GVA
„Ég legg áherslu á mikilvægi þess að eftirlit sé haft með lögreglunni,“ segir Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Mikið hefur verið fjallað um mál tveggja lögreglumanna í fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem grunaðir eru um að taka við greiðslum gegn upplýsingum úr deildinni.

Í Fréttablaðinu í gær sagði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri að hann gæti hugsað sér að komið væri á fót sérstöku embætti sem hefði aðeins það hlutverk að hafa eftirlit með lögreglunni.

„Í skýrslu nefndar um meðferð kvartana og kærumála á hendur lögreglu eru tillögur sem gera ráð fyrir að stjórnsýslunefnd hafi þetta hlutverk með höndum. Í ráðuneytinu er nú unnið að gerð draga að frumvarpi á grundvelli skýrslunnar sem sett verður í almennt umsagnarferli og ég mun skoða allar athugasemdir sem fram koma sem styrkt geta eftirlitið,“ segir Ólöf.

Hún bendir jafnframt á að nýstofnað embætti héraðssaksóknara fer með rannsókn og ákæruvald vegna refsiverðrar háttsemi lögreglumanna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×