Elvar með fimm stig á lokamínútunni í sigri Barry | Lovísa góð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2016 11:30 Elvar Már Friðriksson. Mynd/Samsett/Himasíður Barry og Marist
Elvar Már Friðriksson og félegar í Barry-háskólaliðinu unnu Florida Southern í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt en hann var ekki eini Íslendingurinn sem fagnaði sigri. Lovísa Henningsdóttir hjálpaði einnig sínu liði að vinna góðan sigur.Elvar Már Friðriksson var með 19 stig og 6 stoðsendingar í góðum útisigri en hann hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum og tapaði bara einum bolta á þeim 37 mínútum sem hann spilaði. Hann var einnig með 4 fráköst og 2 stolna bolta. Elvar var næststigahæstur og aðeins einn leikmaður liðsins gaf fleiri stoðsendingar en hann. Elvar skoraði líka fimm stig, þrist og tvö víti, á lokamínútu leiksins þegar Barry-liðið landaði sigrinum. Barry-skólaliðið hefur unnið sjö af fyrstu átta leikjum sínum á leiktíðinni en eina tapið kom í framlengingu um síðustu helgi. Elvar Már er með 17,9 stig og 8,3 stoðsendingar að meðaltali í leik.Lovísa Henningsdóttir átti fínan leik með Marist-háskólaliðnu þegar það vann 76-57 sigur á Boston University. Lovísa var næststigahæst með 13 stig en hún hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum og var einnig með 5 fráköst, 1 stoðsendingu, 1 stolinn bolta og 1 varið skot. Marist-liðið hefur unnið 3 af 10 leikjum sínum á tímabilinu og Lovísa er með 7,4 stig og 4,7 fráköst að meðaltali en hún er einnig efst í stolnum boltum (1,1 í leik) og vörðum skotum í liðinu (1,4 í leik).
Körfubolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Íslenski boltinn „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Sjá meira