Jarðvísindamenn geta litlu spáð um framhaldið í Kötlu Jóhann K. Jóhannsson skrifar 2. október 2016 21:51
Rólegt hefur verið á Kötlusvæðinu síðustu tvo sólarhringa en aðeins nokkrir smáskjálftar hafa mælst í nótt og í dag. Enginn gosórói hefur heldur mælst á svæðinu og eftir athugun jarðvísindamanna á sigkötlum jökulsins í gær sýndu þær engar markverðar breytingar. Sú mikla virkni sem var á svæðinu á föstudag virðist heldur ekki hafa skila auknu rennsli jarðhitavatns í ám í kringum Mýrdalsjökul en viðbúnaðarstig vegna hugsanlegs eldgos var hækkað upp í gult fyrir helgi. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tók ákvörðun um það í gærkvöldi að áfram yrði vegurinn að Sólheimajökli lokaður að minnsta kosti til morguns og að auki yrði áfram bannað að fara í jökulgöngur á svæðinu. Í tilkynningunni segir jafnframt að mælst sé til þess að ekki sé dvalið á víðavangi yfir nóttu allt frá Skógum að Dyrhólavegi og frá útjaðri Víkurþorps í austri að Kúðafljóti. Er þetta gert til að auðvelda viðbragðsaðilum ef til rýmingar kæmi á svæðinu. Vísindaráð almannavarna mun koma saman í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð á morgun og meta aðstæður við Kötlu á ný en engir stórir skjálftar yfir 3 að stærð hafa mælst síðan á föstudag. „Þessi hrina sem byrjaði á fimmtudaginn og rann svo út í gær var það mikil og óvenjuleg að hún líktist mjög mikið því sem verður þegar eldgos er að fara af stað svo það er full ástæða til að vera vakandi áfram. Veðurstofan er með öflugt jarðskjálftamælanet og var að bæta við mælum og síðan voru Veðurstofan og Jarðvísindastofnun að koma upp GPS-tækjum til viðbótar til þess að sjá betur allar hreyfingar. Það eru ekki komnar neinar nýjar upplýsingar sem skipta máli úr þessum kerfum ennþá vegna þess að eftir að þau voru sett upp síðdegis í gær þá hefur virknin verið mjög lítil. Það þýðir að minnsta kosti enn sem komið er að það er engin aukin jarðhitavirkni eða skyndileg aukning í því sem myndi þýða aukna bráðnun og gæti þýtt aukna vatnssöfnun eða hlaup eins og kom árið 2011. Við sjáum engin merki um það, að minnsta kosti ekki ennþá,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira