Ölvaður maður gekk berserksgang í Öldutúnsskóla Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. september 2016 11:50 Maðurinn lét illa á göngum Öldutúnsskóla. vísir/ja.is
Karlmaður í annarlegu ástandi var handtekinn við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði á ellefta tímanum í morgun eftir að hafa farið inn í skólann og ónáðað börn og starfsfólk. Maðurinn var með mikil læti inni á göngum skólans, en að sögn Valdimars Víðissonar, skólastjóra Öldutúnsskóla, urðu börnin ekki vör við manninn nema í stutta stund. „Börnin urðu ekki vör við manninn þegar lögreglan handtók hann því við fylgdum honum út af skólalóðinni. Þetta eru verkferlar sem fara í gang þegar ókunnugir koma inn í skólann eða á skólalóðina,“ segir Valdimar í samtali við Vísi. Valdimar segir manninn fyrst og fremst hafa verið með hávaða og almennt ónæði, þá stuttu stund sem hann hafi verið inni í skólanum. „Hann var hérna í annarlegu ástandi og var með læti á göngunum. Hann kom inn á kaffistofu starfsmanna og var með ónæði við börnin, en það var bara þegar það var verið að fylgja honum út.“ Börnin voru að leik í frímínútum þegar maðurinn kom inn í skólann, og að sögn Valdimars fór maðurinn aldrei inn í skólastofur. Maðurinn hafi ýtt í bolta eins barns og sveiflað höndunum að öðru barninu, en að barnið hafi ekki sakað. „Hann ætlaði að taka til þess með að sveifla höndunum en hann náði því ekki,“ segir hann. Gengið hafi verið með manninn meðfram vegg svo börnin yrðu einskis vör og þaðan út á skólalóð þar sem lögreglan beið mannsins. Valdimar segist hafa gengið í skólastofur og rætt við börnin. Þá verði foreldrum sendur tölvupóstur vegna málsins í dag. Aðspurður segist hann telja manninn á milli tvítugs og þrítugs.Frétt uppfærð kl. 13.40. Í fyrstu var haft eftir Valdimar Víðissyni að maðurinn hefði reynt að slá til eins barns í skólanum. Í tölvuskeyti frá samskiptastjóra Hafnarfjarðarbæjar segir hins vegar að maðurinn hafi ekki komið nálægt neinu barni í skólanum, en þó ýtt í bolta barns.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira