Persónulegt met í aldri Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. maí 2016 09:15 „Ég hef reyndar undanfarin ár verið duglegur við að segja já þegar mér hafa verið boðin verkefni og hef haft ískyggilega mikið að gera – fyrir svona aldraðan mann.“ Vísir/Anton Brink „
Þetta er hæsta tala sem ég hef náð fram að þessu. Persónulegt met í aldri,“ segir Guðni Kolbeinsson þýðandi glaðbeittur þegar hann er spurður hvernig sjötugsafmælið fari í hann. Hann svarar símanum austur í Selvogi, er þó á leið til Reykjavíkur en kveðst hafa stigið út úr bifreiðinni þegar ég hringdi. Svona er hann löghlýðinn borgari. En er orðið vorlegt í Selvoginum? „Já, já, það er bara notalegt. Það var samt bálhvasst hér í gærkveldi.“ Þar með upplýsir Guðni að hann hafi gist í sveitinni. „Já, ég var að reyna að veiða bleikju í Hlíðarvatni. Hvernig gekk? Ja, ég fékk í soðið. Maður verður nú að ráða við að gera að því sem maður veiðir!“ segir hann og frekari aflatölur fæ ég ekki.asasdEn breytir það einhverju fyrir þýðanda að verða sjötugur? „Ekkert voða miklu,“ svarar hann og kveðst að mestu ráða tíma sínum sjálfur. „Ég hef reyndar undanfarin ár verið duglegur við að segja já þegar mér hafa verið boðin verkefni og hef haft ískyggilega mikið að gera – fyrir svona aldraðan mann! Ég er býsna önnum kafinn þessa dagana en samt er allt undir kontról.“ Hann kveðst sjaldan taka löng og mikil sumarfrí. „Ég fer á Hornstrandir í nokkra daga og í veiði í nokkra daga – allt frekar stuttar skreppur,“ upplýsir hann og kveðst heimsækja Hornstrandir árlega, þær séu í uppáhaldi. „Ég er ættaður úr Hælavík en þar eru bara tóftir sem hafið er að berjast við að taka frá okkur svo ég held dálítið mikið til í Hlöðuvík, næstu vík við. Þar er húsakostur og ég hef þar innhlaup. Reyni að fara með stórfjölskylduna að minnsta kosti annað hvert ár en sjálfur á hverju ári. Hallvarður Guðlaugsson, frændi minn frá Hlöðuvík, byggði þar hús, fyrst eitt og síðan tvö og sá um að ættin fengi að njóta.“ Hvernig ferðist þið þangað? Við leigjum okkur bát og siglum frá Bolungarvík, svo förum við með gúmmíbát síðasta spölinn. Landtakan er oft spennandi því það er hált í fjörunni.“ Afmæli Guðna er sem sagt í dag og hann kveðst ætla að halda „smá boð“ fyrir nánustu ættingja og vini. Heima? „Nei, reyndar er það nú í sal, nánustu ættingjar og vinir verða fljótt fjári margir.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. 5. 2016.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira