Reykjavíkurborg sökuð um stórabróðurathæfi Jakob Bjarnar skrifar 10. mars 2016 10:12 Halldór Auðar Svansson hefur ritað borgarlögmanni bréf þar sem hann vill fá skýringar á lagalegri stöðu borgarstarfsmanna sem sitja undir óljósum ásökunum um meint hatursummæli.
Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi Pírata hefur sent bréf til embættis borgarlögmanns þar sem hann vill fá svar við lagalegri stöðu borgarstarfsmanna sem hafa fengið tiltal vegna meintra hatursummæla. Málið er allt hið óljósasta og fást engin skýr svör frá borginni, en fyrir nokkru birtust óljósar fréttir þess efnis að einhverjir starfsmenn Reykjavíkurborgar hafi fengið tiltal vegna hatursummæla sem þeir eiga að hafa látið falla.Vísir hefur fjallað ítarlega um málið og greindi í vikunni frá svörum Önnu Kristinsdóttur mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þeirra Hildar Sverrisdóttur og Magnúsar Sigurbjörnssonar í mannréttindaráði.Hildur Sverrisdóttir hefur tjáð sig um þau svör og sagt vinnubrögð borgarinnar til skammar. Í raun liggur ekkert fyrir um hver sagði hvað við hvern, auk þess sem lagaleg staða starsmanna er algerlega á huldu.Málið minnir óþægilega mikið á mál Snorra í Betel Í bréfi Halldórs Auðar, sem hann birti á Facebook nú í morgun, spyr hann um lagagrundvöll úrræða og vísar til nýlegs dóms í máli Snorra Óskarssonar gegn Akureyrarbæ, en á öllum dómsstigu var uppsögn hans sem kennari í bænum dæmd ólögmæt. Snorri er nú í skaðabótamáli gegn bænum. Halldór Auðar segir dóminn í máli Snorra skýran að því leyti til að lagaheimild skorti til áminningar og brottreksturs á grundvelli háttsemi utan starfs eingöngu. „Þetta er mjög mikilvægt atriði og í þessu ljósi ber að skoða ofangreint svar þar sem fullyrt er að háttsemi utan starfs (hatursorðræða) geti leitt til áminningar og brottreksturs. Sú spurning vaknar hvort slíku hafi verið beitt innan borgarinnar sem og hvort yfir höfuð sé lagagrundvöllur fyrir slíkum íþyngjandi úrræðum í garð starfsfólks borgarinnar vegna tjáningar utan vinnu. Tjáningarfrelsið er stjórnarskrárvarinn réttur sem stjórnvald getur ekki skert eða beitt einstaklinga stjórnsýsluviðurlögum vegna nema hafa til þess skýra heimild.“Hildur fagnar stuðningi úr ranni meirihlutans Halldór segist hafa mikinn áhuga á að skoða hvað hafi verið gert nú þegar í þessum efnum og hvort lagagrunnurinn er traustur. Hér fyrir neðan má heyra viðtal við Hildi Sverrisdóttur í útvarpsþættinum Harmageddon.Merkilegt er í þessu er meðal annars það að Píratar eru í meirihlutasamstarfi í borginni. Málið hefur verið til umfjöllunar á umræðuvettvangi Pírata á Facebook. Formaður mannréttindaráðs er hins vegar Sóley Tómasdóttir Vinstri grænum. Þannig að víst er að pólitískt er málið þegar orðið hið óþægilegasta fyrir meirihlutann. Einar Steingrímsson stærðfræðingur hefur meðal annarra vakið máls á þessum dularfullu hatursummælum og telur af og frá að Píratar geti staðið að gjerningi sem þessum: „Það er ekki í lagi að borgaryfirvöld fylgist með skoðunum starfsmanna borgarinnar og tjáningu þeirra og veiti þeim tiltal, þegar ekki er um að ræða framgöngu viðkomandi í starfi sínu. Það er satt að segja hrikalegt að þetta fólk átti sig ekki á því hvers konar Stórabróðurathæfi þetta er. Þetta er mál sem Píratar í borgarstjórn ættu að vera í fararbroddi við að gagnrýna, tel ég,“ skrifar Einar. Halldór hefur nú brugðist við hvatningu Einars sem og reyndar ýmissa Pírata annarra sem sem telja málið hið versta. Hildur Sverrisdóttir fagnar bréfi Halldórs og sendir honum kveðju á Facebook: „Gleðilegt að sjá að einhver úr meirihlutanum tekur alvarlega athugasemdum okkar um að samkvæmt svörum frá borginni virðist hún ekki hafa heimild til að gera athugasemdir við opinber ummæli starfsmanna. Kúdós og takk Halldór Auðar Svansson, það er gott að fá stuðning til að fylgja þessu máli eftir.“Ég var að senda póst til embættis borgarlögmanns, svohljóðandi.---Daginn,Nú veit ég ekki alveg hvort embætti...Posted by Halldór Auðar Svansson on 9. mars 2016
Tengdar fréttir Óskýr og loðin svör um meint hatursummæli borgarstarfsmanna Hildur Sverrisdóttir segir ótækt að borgin vilji hefta tjáningu starfsfólks á hæpnum forsendum, það sé í raun til skammar. 8. mars 2016 15:03 Spurt um skammir vegna hatursummæla Nokkrir starfsmenn borgarinnar hafa fengið tiltal vegna hatursummæla sem þeir eiga að hafa látið falla. 26. janúar 2016 14:37 Mest lesið Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Fleiri fréttir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Sjá meira
Óskýr og loðin svör um meint hatursummæli borgarstarfsmanna Hildur Sverrisdóttir segir ótækt að borgin vilji hefta tjáningu starfsfólks á hæpnum forsendum, það sé í raun til skammar. 8. mars 2016 15:03
Spurt um skammir vegna hatursummæla Nokkrir starfsmenn borgarinnar hafa fengið tiltal vegna hatursummæla sem þeir eiga að hafa látið falla. 26. janúar 2016 14:37