Mikið jökulvatn í Bláfjallakvísl: Göngufólk á Laugaveginum hvatt til að gæta varúðar Jóhann K. Jóhannsson skrifar 30. júlí 2016 14:44 Laugavegurinn er gönguleið milli Landmannalaugar og Þórsmerkur. Vísir/Vilhelm
Ferðafólk á göngu um Laugaveginn, milli Landmannalaugar og Þórsmerkur, er hvatt til að gæta fyllstu varúðar á ferðum sínum en mikið jökulvatn er nú í Bláfjallakvísl sem rennur frá norðurhluta Mýrdalsjökuls. Tilkynningar hafa borist um brennisteinslykt á svæðinu vegna lekans. Vaða þarf Bláfjallakvísl á hinni vinsælu gönguleið en vöðin eru sérstaklega varhugaverð nú. Vatnshæð og rafleiðnimælingar við brú Múlakvíslar sýni aukinn leka jarðhitavatns undan Mýrdalsjökli. Jarðhitavatn hefur hins vegar lítil áhrif á vatnshæð í Bláfjallakvísl heldur er þar um að ræða aukinn vatnsstraum vegna mikilla hlýinda að undanförnu.Tiltölulega rólegt eins og er Sigurdís Björg Jónasdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir ástæðu til að fylgjast vel með stöðunni. „Staðan er sú að það er tiltölulega rólegt eins og er. Virknin hefur aðeins færst sunnar í öskjunni og komin lengra inn á vatnasvið Múlakvíslar. Það er samt mjög rólegt núna, en enn er há rafleiðni í Múlakvísl og tiltölulega mikið vatn í ánni. En ekki eins og í stóru jökulhlaupi.“ Sigurdís segir ekki vera um bráða hættu að ræða. „Við erum þó alltaf á tánum ef kæmi jökulhlaup. Það eru alltaf að koma tilkynningar um jarðhitalykt sem finnst á svæðinu, brennisteinslykt, en við erum að gefa út svona yfirlýsingu vegna viðbúnaðar út af auknum ferðamannastraumi á þessu svæði.“ Veðurstofan gaf í gær út viðvörun þar sem ferðafólk á göngu um Laugaveginn er hvatt til að gæta varúðar við Bláfjallakvísl vegna mikils rennslis.Aldrei fleiri gengið Laugaveginn Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, segir aldrei fleira göngufólk hafa verið á svæðinu en í sumar. „Við erum með einn hóp á ferðinni. Það er Ferðafélag barnanna. Það eru milli 200 og 250 manns að ganga núna milli hvers skálasvæðis yfir helgina. Skálaverðir hafa tekið stöðuna og skoðað aðstæður og við höfum verið í sambandi við Veðurstofuna.“ Hann segir göngufólk á svæðinu vera meðvitað um hættuna og vera duglegt að leita ráða og upplýsinga og fara eftir þeim.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Sjá meira