Ótti ástæðulaus en rétt að vera á verði Svavar Hávarðsson skrifar 12. janúar 2016 07:00 Smokkurinn er í dag, sem áður, skilvirkasta leiðin til að verjast lekanda og fleiri kynsjúkdómum. vísir/gva „
Þetta hringir ákveðnum viðvörunarbjöllum, og maður veit að þetta er til staðar. En það er fylgst vel með þessu hér og hvort lyfin eru að virka,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, spurður um þær fréttir frá Bretlandi og Bandaríkjunum að fjölónæmur lekandi sé þar kominn til að vera og tilfellum fjölgi ár frá ári. Landlæknir Bretlands mun hafa ritað læknum og lyfsölum bréf vegna þessa skömmu fyrir áramót, en samkvæmt frétt stórblaðsins Guardian um málið hvetur hann menn til að vera á varðbergi og gæta þess að meðhöndlun sjúkdómsins sé í samræmi við hvað er að eiga á hverjum tíma. Vandamál vegna ofnotkuna sýklalyfja er flestum kunn, en hérlendis hefur fjölónæmur lekandi ekki greinst til þessa. Baldur Tumi BaldurssonAlþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur hins vegar greint frá því að tilfelli hafi einnig komið upp í Noregi, Svíþjóð, Ástralíu og Frakklandi. Í umfjöllun Guardian er haft eftir landlækni Breta að hætt sé við að viss afbrigði lekanda geti orðið ill- eða óviðráðanlegur sjúkdómur. Þórólfur segir alltaf spurningu um hvort og þá hvenær svona baktería skýtur upp kollinum hérlendis. „Það veit maður ekkert um en svona bakteríur, svona almennt séð, virða ekki landamæri ríkja. En á meðan þetta kemur ekki upp hér breytum við ekki okkar aðferðafræði.“ Baldur Tumi Baldursson, yfirlæknir á húð- og kynsjúkdómadeild Landspítala, segir að lekandi hafi verið fátíður síðustu áratugina á Íslandi sem og sárasótt (sýfilis). Sýklalyfjameðferð sem notuð er á kynsjúkdómadeild Landspítala sé í samræmi við evrópskar leiðbeiningar.Smokkurinn er í dag, sem áður, skilvirkasta leiðin til að verjast lekanda og fleiri kynsjúkdómum.vísir/heiðaBaldur Tumi segir að sárasótt hafi tekið stórt stökk upp á við 2014 og 2015 en virðist í rénun. Klamidía greinist í enn hærra hlutfalli af sjúklingum á kynsjúkdómadeild en áður og sé enn sem fyrr í sérflokki hvað varðar fjölda greindra tilfella. Hann segir að það virðist nánast öruggt að ef einstaklingur stundar óvarið kynlíf og skiptir oft um bólfélaga þá fær hún eða hann klamidíu. Ef viðkomandi notar smokk er hún eða hann hins vegar örugg um að fá ekki þessa sjúkdóma. „Ég mundi ráðleggja fólki að kaupa sér smokkapakka um leið og það setur Tinder í símann. Hver vill verða fyrstur á Íslandi að fá fjölónæman lekanda?“ segir Baldur Tumi.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Fleiri fréttir Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Gísli Gunnar efstur í Grýtubakkahreppi Listi sveitarstjórans með flesta fulltrúa Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfkjörin í Kjósarhreppi Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Sjá meira