Ættleiðing flóttabörnum ekki fyrir bestu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. janúar 2016 17:39 Ólöf Nordal. vísir/anton brink
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir það fylgdarlausum börnum í flóttamannabúðum ekki fyrir bestu að auðvelda ferli við ættleiðingu á þeim til annarra landa. Nærtækara sé að efla og styrkja það alþjóðlega mannúðarstarf sem þegar sé til staðar í flóttamannabúðum. Þetta kemur fram í svari hennar við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um ættleiðingar á munaðarlausum börnum úr flóttamannabúðum. Jóhanna spurði meðal annars hvort skoðaður hefði verið sá möguleiki á að Íslendingar ættleiði börn frá svæðum sem flóttamenn komi frá á næstu mánuðum og hvort hún hyggist beita sér fyrir því að auðvelda slíkar ættleiðingar.Mansal viðurkennt í tengslum við ættleiðingar Ólöf vísaði til Haag-samningsins um ættleiðingar frá árinu 1993, sem Ísland er aðili að. Í honum sé áréttað að hverju aðildarríki beri að gera viðeigandi ráðstafanir til þess að börn geti notið umsjár upprunalegrar fjölskyldu sinnar, enda í grundvallaratriðum sé gert ráð fyrir að barni sé almennt fyrir bestu að alast upp hjá foreldrum sínum eða fjölskyldu sinni. Ættleiðing milli landa geti því aðeins komið til álita ef barn eigi ekki þess kost að alast upp hjá viðeigandi fjölskyldu í heimalandi sínu. Um sé að ræða grundvallarreglu í alþjóðasamningum og því beri að taka mið af henni við alla stefnumótum og framkvæmd. Ólöf segir jafnframt að viðurkennt sé að mansal eða sala á börnum í tengslum við ættleiðingar milli landa eigi sér stað. „Sem dæmi hér um er rétt að nefna að í kjölfar hamfaranna á Haítí taldi sérfræðinganefnd um Haag-samninginn nauðsynlegt að vekja athygli á aukinni hættu á mansali eða sölu á börnum sem getur skapast í kjölfar styrjalda eða náttúruhamfara. Við þær aðstæður beri að setja í algeran forgang að sameina barn og foreldra eða upprunafjölskyldu. Ótímabærar umsóknir um ættleiðingar eða umsóknir utan hefðbundinna leiða beri markvisst að forðast og stöðva,“ segir hún.Rétt að varast slíkar ættleiðingar Aðspurð hvort önnur lönd séu með ákveðið fyrirkomulag á ættleiðingum á munaðarlausum börnum úr flóttamannabúðum segir hún innanríkisráðuneytið hafa sent fyrirspurnir þess efnis til danskra, finnskra, norskra og sænskra stjórnvalda. Líkt og á Íslandi séu engar fyrirliggjandi heimildir sem leyfi ættleiðingar úr flóttamannabúðum og að engar breytingar þar á séu fyrirhugaðar. Til að mynda telji finnsk stjórnvöld rétt að varast slíkar ættleiðingar þar sem margvíslegar hættur tengist þeim. Ættleiðing milli landa eigi einungis að koma til álita eftir að kannað hafi verið til þrautar hvort mögulegt sé að ráðstafa barni með fullnægjandi hætti í heimalandi þess. „Í svari finnskra stjórnvalda er einnig bent á að mögulega geti fylgdarlaust barn í flóttamannabúðum átt foreldra eða nána ættingja á lífi. Þá er lögð þung áhersla á að mikilvægt sé að fá samþykki líffræðilegra foreldra barns fyrir ættleiðingu. Ef þau séu á hinn bóginn talin af verði að liggja fyrir staðfesting þess efnis með fullgildum dánarvottorðum. Þannig sé einfaldlega ekki nærri alltaf hægt að ganga úr skugga um það með óyggjandi hætti að börn í flóttamannabúðum séu í raun í þeirri stöðu að ættleiðing sé ásættanlegt úrræði. Önnur ríki á Norðurlöndunum hafa tekið undir þessi sjónarmið Finna,“ segir Ólöf.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira